Borganes fasteignir ehf. hefur gengið frá kaupum á húsnæði við Borgarbraut 59 í Borgarbyggð, þar sem Hótel Vesturland er starfrækt, af BS-eignum ehf. Kaupverðið nemur 2,5 milljörðum króna. Um er að ræða 4.345 fermetra húseign. Nafn hótelsins fylgir með í kaupunum, sem og allur húsbúnaður, tæki og áhöld sem eru til staðar í húsnæðinu. Húsnæðið, sem er 4.345 fermetrar að stærð, er í leigu og yfirtekur kaupandi núgildandi leigusamning. Gert er ráð fyrir að eignin verði afhent 1. júní 2026. Kaupverðið verður meðal annars greitt með nokkrum fasteignum. Þannig verða 590 milljónir greiddar með atvinnuhúsnæði í Vatnagörðum 16-18 sem er alls 1.287 fermetrar að stærð, 410 milljarðar með 535 fermetra atvinnuhúsnæði við Vatnagarða 16, 395 milljónir með 540 fermetra atvinnuhúsnæði við Hvaleyrarbraut 41 í Hafnarfirði, og 256 milljónir með 8 íbúðum, alls 884 fermetrar að stærð, við Grænásbraut 602A og 602B. Seljandi yfirtekur þá 607 milljóna lán áhvílandi á Vatnagörðum 16 og 16-18, og Hvaleyrarbraut 41 við Arion banka. Loks verður greitt með andvirði nýs 1.456 milljóna króna láns við Íslandsbanka. Pétur Björnsson, sem er meðal annars eigandi Golfhallarinnar á Granda, er skráður forráðamaður Borganes fasteigna en BS-eignir eru í eigu Snorra Hjaltasonar og Brynhildar Sigursteinsdóttur. Byggt árið 2018 Hótel Vesturland var opnað í Borgarnesi árið 2024 af hjónunum Halldóru Guðjónsdóttur og Bjarna Rúnari Bequette, en á hótelinu eru 81 herbergi, veitingastaður, bar, heilsulind og fundaraðstaða. Í húsnæðinu var áður hótelið B59, en húsnæðið var byggt árið 2018. Hótelið var opnað í júní sama ár en lokað í nóvember 2023.