Bandaríkin eru með fullt hús stiga í D-riðli á HM karla í fótbolta. Liðið vann Ástralíu í kvöld, 2-0. Bandaríkjamenn komust yfir á 11. mínútu eftir góðan sprett Folarin Balogun. Hann gaf fyrir og boltinn fór af Ástralanum Cameron Burgess í netið. Undir lok fyrri hálfleiks fengu Bandaríkjamenn aukaspyrnu nálægt hornfána Ástralíu. Þeir lögðu boltann út á Sergiño Dest sem skaut í varnarmann. Af honum fór boltinn hátt upp í loft, Alex Freeman var fyrstur að átta sig og hann kom boltanum yfir línuna. Ástralir reyndu aðeins að sækja í seinni hálfleik og vildu nokkrum sinnum fá vítaspyrnu en fengu aldrei. Bandaríkin héldu út og unnu sinn annan sigur á mótinu. Tyrkland og Paragvæ mætast í seinni leik dagsins í D-riðli klukkan 03:00 í nótt, bæði lið geta jafnað Ástralíu að stigum með sigri. Hér má sjá stöðuna í öllum riðlum HM .