Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 11:39 Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum mbl.is/Golli Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, og Kári Sigurðsson, eignastýringarsérfræðingur í London, eru höfundar nýrrar fræðigreinar í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál. Þar komast þeir að þeirri niðurstöðu að ávöxtun séreignarsjóðanna hafi að jafnaði verið töluvert lakari en hjá samtryggingarsjóðunum og segir Gylfi að íslenskir sjóðfélagar fari á mis við háar fjárhæðir. „Ef séreignarsjóðirnir væru með svipaða ávöxtun og samtryggingarsjóðirnir þá myndi það skila sjóðfélögum aukalega nærri 20 milljarða króna ávöxtun ár hvert,“ segir hann. Viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið var kynnt til sögunnar árið 1997 og hefur þróast og stækkað töluvert síðan þá. Árið 2024 áttu sjóðfélagar um 1.374 milljarða króna í séreignarsparnaði og eru það um 18,8% af eignum lífeyriskerfisins í heild. Í rannsókn Gylfa og Kára er það reiknað út að á tímabilinu 2016 til 2024 hafi meðalávöxtun séreignarsparnaðar verið 2,41% á meðan samtryggingarkerfið náði að jafnaði 3,74% ávöxtun. Áhrifin af þessum frammistöðumun safnast upp yfir starfsævina því eftir að hafa lagt fyrir í 40 ár gæti launþegi átt 37% meira inni hjá séreignarsjóði ef ávöxtunin hefði verið 3,74% í stað 2,41%. Munurinn á frammistöðunni hjá sér- og sameignarsjóðunum er ekki síst áhugaverður í ljósi þess að séreignarsjóðirnir hafa hér um bil fullt frelsi um það hvaða fjárfestingarkosti þeir velja á meðan samtryggingarsjóðirnir þurfa að lúta ströngum skilyrðum um skiptingu eignaflokka. Þannig hefði t.d. sjóður sem einfaldlega hefði fylgt S&P 500-vísitölunni, á því tímabili sem Gylfi og Kári skoðuðu, skilað sjóðfélögum að jafnaði um og yfir 15% ávöxtun árlega. Að sögn Gylfa má einkum rekja lakari ávöxtun íslensku séreignarsjóðanna til tveggja þátta: „Fyrir það fyrsta er kostnaðurinn hærri hjá fjárvörsluaðilunum í séreignarkerfinu sem dregur auðvitað úr ávöxtun. Þar ber að hafa í huga að séreignarsparnaðurinn er að miklu leyti í vörslu fjármálafyrirtækja sem rekin eru í hagnaðarskyni á meðan samtryggingarsjóðirnir eru reknir fyrir eigin sjóðfélaga og engan annan.“ Hitt atriðið snýr að því að margir sjóðfélagar virðast einfaldlega hafa valið ósniðuga fjárfestingarleið fyrir séreignarsparnaðinn sinn. Gylfi bendir á að séreignarsparnaðarsjóðirnir bjóði upp á fjölda valkosta fyrir bæði áhættufælna og áhættusækna, og allt þar á milli. „Þrátt fyrir að hafa nánast fullkomið frelsi hafa margir valið mjög áhættulitlar fjárfestingarleiðir og leggja inn á sjóði með mikla áherslu á innlán sem eru ekki eðlilegur fjárfestingarkostur fyrir langtímasparnað. Innlánin gætu verið heppileg fyrir fólk sem er komið á efri ár þegar stutt er í að megi taka séreignina út, en fyrir þá sem geta vænst þess að ávaxta inneignina í nokkra áratugi væri t.d. betra að velja í staðinn örugg skuldabréf sem eru til langs tíma jafnörugg og innistæður en skila betri vöxtum.“ Val sem hentar bönkunum Gylfi tekur undir að hér kunni að spila inn í að hinn almenni sjóðfélagi búi ekki yfir þeirri þekkingu sem þarf til að velja betur. „En svo er líka vert að spyrja að hvaða marki séreignarsjóðirnir kunni að vera að ýta fólki að þessum valkostum en í rannsókninni kom í ljós að innlánin mynda hærra hlutfall af séreignarsparnaði sem er í umsjón banka en þegar séreignarsparnaðurinn var í vörslu venjulegs lífeyrissjóðs.“ Því miður er ekki hægt að útiloka að þar hafi eiginhagsmunir bankanna einhver áhrif enda bendir Gylfi á að innlán séu einhver ódýrasta fjármögnun sem bönkunum stendur til boða og hvað þá þegar um er að ræða innistæður sem ekki er hróflað við áratugum saman. „Bankarnir greiða ekki sérlega háa vexti af innistæðunum en innheimta sínar þóknanir fyrir að taka við séreignarsparnaðinum og leggja inn á bankareikning. Þetta eru greinilega mjög góð viðskipti fyrir bankana en ekki endilega jafngóð frá sjónarhóli sjóðfélaga.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Krefst að Epstein-skjölin verði birt óritskoðuð Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum Ingibjörg og Bjarni Guðjónsson nýtt par Landsliðsmaður til Spánar Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint flug eflir viðskipti ríkjanna 235 látnir og hátt í 40 þúsund er saknað „Þetta er stórhættulegt“ Borgin viðurkennir veruleg mistök Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Þetta er stórhættulegt“ Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Borgin viðurkennir veruleg mistök Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Hildur heitir að standa við stóru orðin „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Krefst að Epstein-skjölin verði birt óritskoðuð Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum Ingibjörg og Bjarni Guðjónsson nýtt par Landsliðsmaður til Spánar Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku Sýndu óvart nöfn Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Þetta er stórhættulegt“ Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Borgin viðurkennir veruleg mistök Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Hildur heitir að standa við stóru orðin „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article