Gildi lífeyrissjóður hefur kynnt nýja séreignarsparnaðarleið þar sem eignasafnið er að fullu ávaxtað í erlendri mynt. Eignasafn fjárfestingarleiðarinnar mun skiptast þannig að um 60% eignasafnsins verður ávöxtuð í hlutabréfum og hin 40% í skuldabréfum. „Eign – Erlend er [...] hugsuð fyrir erlenda sjóðfélaga Gildis og aðra þá sem hafa áhuga á að séreignasparnaður þeirra sé alfarið fjárfestur í erlendum eignum,“ segir í tilkynningu á vef Gildis. Þess má geta að ríflega helmingur þeirra sem í dag greiða iðgjöld sín til Gildis er af erlendum uppruna. Auk ofangreindrar fjárfestingarleiðar kynnir Gildi til sögunnar leiðina Eign – 70/30 þar sem 70% eignasafnsins eru ávöxtuð í hlutabréfum. Umrædd leið er sögð geta hentað yngri sjóðfélögum sem sjá fyrir sér að ávaxta inneign til lengri tíma. Einnig kynnir Gildi til sögunnar sjálfvirkra aldurstengda leið, Eign – Aldurstengd, þar sem inneign sjóðfélaga er flutt sjálfkrafa milli fjárfestingarleiða eftir aldri sjóðfélaga. Hjá Gildi verða nú í boði fimm fjárfestingarleiðir sem lífeyrissjóðurinn segir að geri sjóðfélögum kleift að velja á milli ólíkra leiða eftir væntri ávöxtun, áhættu, fyrirhuguðum fjárfestingartíma og áherslum í eignastýringu. Nýju fjárfestingarleiðirnar taka gildi 1. september. „Markmiðið með fyrirhuguðum breytingunum er m.a. að bregðast við þörfum yngri sjóðfélaga og erlendra sjóðfélaga og fjölga valkostum í séreignarsparnaði með t.d. auknu vægi hlutabréfa og auknu vægi erlendra eigna frá því sem verið hefur.“ Nýtt vöruframboð séreignarleiða Gildis sem tekur formlega gildi 1. september. © Aðsend mynd (AÐSEND) Vara við sparnarleiðum erlendra vörsluaðila Gildi hvetur sjóðfélaga til að vanda val sitt á fjárfestingarleiðum fyrir séreignarsparnað og kynna sér vel vænta ávöxtun, áhættustig, kostnað og aðra skilmála. „Dæmi eru um sparnaðarleiðir sem fela í sér há upphafsgjöld eða verulega hærri viðvarandi kostnað en þær leiðir sem Gildi býður upp á. Þá eru einnig dæmi um sparnaðarleiðir þar sem kostnaðarsamt er að flytja sparnað milli fjárfestingarleiða. Slíkir þættir geta haft veruleg áhrif á ávöxtun, uppbyggingu sparnaðar og sveigjanleika til lengri tíma,“ segir í tilkynningu á vef Gildis. Þar virðist sjóðurinn vísa til erlendra vörsluaðila sem bjóða upp á þjónustu tengda séreignarlífeyrissparnaði hér á landi í formi lífeyristryggingar, þ.e. Allianz, Bayern-Líf og VPV.