Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gylfi Sig selur sumarbústað með velli

Read Full Article →

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur sett sumarbústað sinn í Öndverðarnesi á sölu. Um er að ræða 152,3 fermetra eign á 5.000 fermetra leigulóð við Stangarbraut sem er auglýst til sölu hjá Borg fasteignasölu. Aðalhúsið er 127,3 fermetrar en auk þess fylgir 25 fermetra gestahús sem er tilbúið til innréttinga. Í bakhluta gestahússins er geymsla með innkeyrsluhurð fyrir golfbíl. Ásett verð er 89,9 milljónir króna, sem jafngildir 590.282 krónum á fermetra. Fasteignamat hennar fyrir árið 2026 er 78,6 milljónir króna en brunabótamat 95,15 milljónir króna. Aðalhúsið er 127,3 fermetrar en auk þess fylgir 25 fermetra gestahús sem er tilbúið til innréttinga. Í bakhluta gestahússins er geymsla með innkeyrsluhurð fyrir golfbíl. Eldhúsið er með hvítrlakkaðri innréttingu og efri og neðri skápum. Gólf eru flísalögð í forstofu, alrými, svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi, en parket er á sjónvarpsloftinu. Upplýsingar um eignina eru hér . Það sem vekur sérstaka athygli við eignina er afgirtur fótboltavöllur með gervigrasi sem er á lóðinni. Auk þess er stórt bílaplan, grasflöt og trjágróður sem umlykur húsið. Samkvæmt fasteignaskrá er heildarstærð eignarinnar 152,3 fermetrar. Húsið stendur á 5.000 fermetra leigulóð innan lokaðs sumarhúsasvæðis í Öndverðarnesi þar sem rafmagnshlið takmarkar aðgang. Eigendur sumarhúsa á svæðinu hafa aðgang að 18 holu golfvelli, golfskála sem hægt er að leigja fyrir mannfögnuði og sundlaug. Umsjónarmaður sér um rekstur svæðisins, þar á meðal sundlaugina og snjómokstur yfir vetrartímann. Samkvæmt sölulýsingu getur húsið verið laust til afhendingar með skömmum fyrirvara og jafnframt er mögulegt að semja um kaup á innbúi.

Share this article