Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gummi Ben selur raðhús í Vesturbæ

Read Full Article →

Guðmundur Benediktsson, sjónvarpsmaður, knattspyrnulýsandi og fyrrverandi knattspyrnumaður, og eiginkona hans Kristbjörg Ingadóttir, fyrrverandi knattspyrnukona, hafa sett hús sitt á Aflagranda í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu . Um er að ræða 192 fermetra endaraðhús. Ásett verð eru 185 milljónir króna. Í fasteignaauglýsingu er eigninni lýst sem virkilega skemmtilegu, björtu og vel skipulögðu endaraðhúsi á tveimur hæðum, auk herbergis í risi. Þá er bakgarðinum lýst sem fallegum suðurgarði með timburveröndum, skjólveggjum og heitum potti. Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og bílskúr.

Share this article