Belgía og Egyptaland eru komin áfram upp úr E-riðli eftir lokaumferðina sem kláraðist í nótt. Belgía hafði yfirhöndina allan tímann í leik sínum gegn Nýja-Sjálandi í nótt. Leandro Trossard skoraði fyrsta mark leiksins á 28. mínútu og bætti svo öðru við á þeirri 50. Kevin de Bruyne kom Belgum í 3-0 á 66. mínútu. Elijah Just kom Nýsjálendingum á blað með marki á 84. mínútu og staðan þá orðin 3-1. Belgar bættu þá bara í og Romelo Lukaku skoraði fjórða mark þeirra á 86. mínútu. Alexis Saelemaekers kom boltanum í netið á 4. mínútu uppbótartímans. Lokatölur 5-1 fyrir Belgum. Dramatískar lokasekúndur í viðureign Egypta og Írana Það var nokkuð jafnræði með liðum Egyptalands og Írans í hinum leiknum í E-riðli. Mahmoud Saber kom Egyptum yfir strax á 5. mínútu. Það leið ekki á löngu þar til Íranar jöfnuðu með marki Ramin Rezaeian á 14. mínútu. Það leit út fyrir að Íranar væru á leið upp úr riðlinum en á lokasekúndum leiksins kom Shoja Khalilzadeh boltanum í netið. Markið var svo dæmt af Írönum vegna rangstöðu eftir að myndbandsdómarar leiksins höfðu farið vel yfir sókn Írana. Lokatölur því 1-1 og Íranar þurfa að bíða eftir úrslitum úr öðrum riðlum til að komast að því hvort þeir komist í 32-liða úrslit mótsins.