Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Belgía - Senegal

Read Full Article →

Þetta var hálf ótrúleg endurkoma sem Belgar náðu. Þeir voru á leið út úr mótinu, 0-2, undir. Senegal komst yfir á 25. mínútu með marki Diarra. Senegal skoraði svo annað markið á 51. mínútu er Ismail Sarr skoraði glæsilegt mark. Rudi Garcia tók de Bruyne og Doku út. Belgar skoruðu svo tvö mörk á 86. og 89. mínútu en fram að því leit ekkert út fyrir að þeir væru að fara að skora. Lukaku og Tielemans gerðu mörkin. Framlengingin var bragðdauf en Senegal voru þó hættulegri. Undir lok hennar vann fyrirliðinn Tielemans vítaspyrnu er Camara braut á honum. Tielemans skoraði af miklu öryggi og markið kom á 124. mínútu. „Þetta er eins og að taka Jordan og Pippen út af,“ sagði Eiður Smári sem lýsti ásamt Gunnari Birgissyni, þegar Garcia tók tvíeykið de Bruyne og Doku út af.

Share this article