Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.6.2026 | 10:12 Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Morgunblaðið/Karítas Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Efnt verður til útboðs vegna innivinnu í rannsóknahúsi nýs Landspítala við Hringbraut í júlí og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist með haustinu. Eins og vegfarendur á Hringbraut hafa tekið eftir standa nú yfir miklar framkvæmdir í nýbyggingum sunnan meðferðarkjarnans, annars vegar í nýju rannsóknahúsi og hins vegar í viðbyggingu Læknagarðs sem verður hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Félagið NLSH ohf. stýrir verkefninu fyrir hönd félags sem heitir Fasteignir Háskóla Íslands. Ólafur M. Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH, sýndi blaðamanni og ljósmyndara svæðið í fyrradag. Við gengum fyrst inn Burknagötuna en borgarlínan mun aka um hana í framtíðinni. Ólafur upplýsir þá að nýju byggingarnar sunnan Burknagötu – bílastæða- og tæknihúsið, rannsóknahúsið og hús heilbrigðisvísindasviðs – verði tengdar með göngum neðanjarðar og yfir í meðferðarkjarnann norðan götunnar. Norðan við meðferðarkjarnann verði svo tengigangur yfir í Barnaspítalann, kvennadeildina og Kringluna. Á seinni stigum verður tengigangur framlengdur upp að bráðamóttökunni. Um 20 þúsund fermetrar Við gengum fyrst inn í rannsóknahúsið en síðustu mánuði hefur útlit hússins farið að birtast með uppsetningu útveggja. Það er um 20 þúsund fermetra bygging sem er með kjallara og fimm hæðum þar ofan á. Hönnuðir eru Corpus-hópurinn (Hornsteinar, VSÓ og Lota). „Eykt hefur lokið við uppsteypu rannsóknahúss og er að ljúka uppsetningu stálvirkis. Verklok þess verkþáttar eru áformuð í júlí 2026,“ segir Ólafur. „Jafnframt hefur Eykt hafið vinnu við frágang á þaki ásamt regnvatnslögnum en verið er að ganga frá þakpappa, einangrun og hellulögn á þakplötu rannsóknahúss. Staticus vinnur að uppsetningu útveggja og þegar Eykt hefur lokið við að setja upp stálvirki mun Staticus ganga frá þakglugga yfir miðrými hússins,“ segir Ólafur en litáíski útveggjaverktakinn Staticus sá líka um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum meðferðarkjarnans. Ólafur upplýsir svo að við hönnun stálvirkisins fyrir þakgluggann í miðrýminu sé gert ráð fyrir að glugginn geti færst til í jarðskjálfta en þá rifjast upp að bil er milli stanganna fimm í meðferðarkjarnanum af sömu ástæðu. Að sögn Ólafs eru útboðsgögn vegna innanhússfrágangs á lokametrunum en stefnt sé að útboði á öllum innanhússfrágangi í næsta mánuði. Áformað sé að ljúka framkvæmdum í húsinu á þriðja ársfjórðungi 2029 en þá taka við prófanir og uppsetning klínísks búnaðar. Með því er áformað að taka rannsóknahúsið í notkun á undan meðferðarkjarnanum og húsi heilbrigðisvísindasviðs. Þykkir veggir í rannsóknahúsinu vekja athygli. Rifjast þá upp hugmyndir um að koma fyrir þyrlupalli á þaki hússins. Ólafur segir aðspurður það enn vera til skoðunar í samráði við sérfræðinga í Skotlandi og Noregi. Gert hafi verið ráð fyrir því við hönnun burðarvirkis að hægt yrði að koma fyrir þyrlupalli á þakinu. Ólafur segir um þrjú hundruð manns að störfum á framkvæmdasvæðinu en gera megi ráð fyrir að þeim fjölgi í um þúsund þegar mest verður árin 2028 og 2029. Við skoðuðum næst hús heilbrigðisvísindasviðs sem verður í 10 þúsund fermetra nýbyggingu sem tengd verður byggingunni sem nú heitir Læknagarður. Húsið verður með kjallara og verða fimm hæðir ofan á. Hafa lokið uppsteypu Ólafur segir ÞG verktaka hafa lokið við uppsteypu á húsi heilbrigðisvísindasviðs. Uppsetning útveggja sé hafin og gert ráð fyrir að henni ljúki fyrir áramót. ÞG verktakar sjái líka um þann verkþátt. Verið er að reisa stálvirki á þakinu en þar verður tæknikerfi hússins, þ.m.t. loftræstikerfi. Samhliða stendur til að breyta þakinu á Læknagarði til að koma fyrir öflugri tæknikerfum. Fylgir því uppsetning stálgrindar sem mun samræma útlit þaksins á húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og Læknagarðs. Við þá samræmingu mun rauð klæðning sem er á hluta þaksins á Læknagarði víkja. „Útboðsgögn vegna innanhússfrágangs eru tilbúin og útboð hefst í október 2026. Stefnt er að því að hefja innivinnu í febrúar 2027. Verklok viðbyggingar eru áformuð á öðrum ársfjórðungi 2029 og þá mun starfsemin í eldri hlutanum flytjast yfir í viðbygginguna og í framhaldinu hefjast endurbætur innanhúss í núverandi húsnæði, þ.e. í Læknagarði. Verklok þessa verkefnis alls eru svo áformuð á fjórða ársfjórðungi 2030,“ segir Ólafur en hönnuðir húss heilbrigðisvísindasviðs eru Verkís verkfræðistofa, TBL arkitektar og JCA architecture. Vestan við rannsóknahúsið er búið að reisa bílastæða- og tæknihús. Innanhússfrágangi er að ljúka en verið er að leggja snjóbræðslu í götuna austan við húsið og verður hún svo malbikuð. Alls verða 522 stæði á 16 pöllum í húsinu og 200 hjólastæði. Tekið í notkun í ágúst Ólafur segir stefnt að því að taka bílastæðahúsið í notkun í ágúst en hann vekur athygli á því að þar verður líka varaaflskerfi fyrir meðferðarkjarnann og rannsóknahúsið. Bílastæðahúsið er um 20 þúsund fermetrar og fara T.ark arkitektar með hönnun. Samanlagt eru rannsóknahúsið, hús heilbrigðisvísindasviðs og bílastæðahúsið 50 þúsund fermetrar og bætast þau við meðferðarkjarnann sem er rúmlega 70 þús. fermetrar ásamt 7 þús. fermetra bílakjallara. Á við tvær Kringlur Alls eru þetta um 127 þúsund fermetrar eða um tvöfaldur grunnflötur Kringlunnar. Ólafur segir gert ráð fyrir að framkvæmdum við meðferðarkjarnann ljúki í árslok 2029 en þá taki við prófunartími og klínísk uppsetning fram á mitt ár 2030. Er því gert ráð fyrir að byggingarnar þrjár – rannsóknahúsið, hús heilbrigðisvísindasviðs og meðferðarkjarninn – verði komnar í fulla notkun árið 2030. Stjórnandi Ólafur M. Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH, á þaki rannsóknahússins. Þakið á húsi heilbrigðisvísindasviðs er í bakgrunni. Morgunblaðið/Karítas Við Læknagarð Viðbyggðing fyrir hús heilbrigðisvísindasviðs er risin. Nær tilbúið Bílastæða- og tæknihúsið verður tekið í notkun í ágúst. Birta Miðrýmið í rannsóknahúsinu. Þakgluggi mun hleypa birtu niður í rýmið. Sjá má göngubrú í bakgrunni. Ofanbirta Miðrýmið í húsi heilbrigðisvísindasviðs verður með þakglugga. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Belgía í útsláttarkeppnina eftir stórsigur „Ég vildi bara ganga úr skugga um að við værum enn vinir“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Fjórir skotnir eftir HM-leik í gær Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimsbyggðin réttir Venesúela hjálparhönd Grænlandsmálinu er ekki lokið Auglýsa eftir húsnæði undir brottfararstöð Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Rúmlega 8.700 umsóknir bárust „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu Belgía í útsláttarkeppnina eftir stórsigur „Ég vildi bara ganga úr skugga um að við værum enn vinir“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Fjórir skotnir eftir HM-leik í gær Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Heimsbyggðin réttir Venesúela hjálparhönd Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Rúmlega 8.700 umsóknir bárust „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi

Share this article