Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 9:25 Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Horft af þaki nýs rannsóknahúss yfir Læknagarð og nýja viðbyggingu við hann til hægri. Meðferðarkjarninn er í bakgrunni. mbl.is/Karítas Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, segir nýjar tölur um aðflutning erlendra ríkisborgara til landsins renna stoðum undir þá tilgátu að ferðaþjónustan og byggingargeirinn séu fullmannaðir geirar sem stendur. Því sé ekki mikil eftirspurn eftir erlendu vinnuafli á þeim sviðum. Fjallað var um nýjar tölur Hagstofunnar um búferlaflutninga í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag. Þar kom fram að 1.150 fleiri erlendir ríkisborgarar hafa flust til landsins en frá því á fyrri hluta ársins. Með sama áframhaldi verði nettótalan í ár undir meðaltalinu tímabilið 2000-2025, sem er 2.854 aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta. Tímabundið ástand Magnús Árni segir þetta ástand sumpart tímabundið. Byggingargeirinn muni taka við sér á ný og ferðaþjónustan að óbreyttu halda áfram að vaxa í náinni framtíð. „Á næstu árum munum við þurfa fleira fólk í aðhlynningu. Því er líklegt að aðflutningur fólks haldi áfram. Hugverkaiðnaðurinn tekur vonandi vel við sér líka,“ segir Magnús Árni og vekur athygli á þeim möguleikum sem kunna að skapast í kringum rekstur gagnavera sem þjóna gervigreind. Á vef Hagstofunnar, undir flipanum Íbúar, er búið að setja upp lifandi línurit yfir breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Sýnir það vel hvernig eldri borgurum er að fjölga hlutfallslega á Íslandi en hagfelld aldurssamsetning hefur styrkt íslenskan vinnumarkað síðustu áratugi. Hlutfallið hækkað úr 10% í 14% Þannig voru Íslendingar 279.049 talsins árið 2000 og voru þar af 28.511 einstaklingar 67 ára og eldri, eða rúmlega 10% íbúafjöldans. Í byrjun þessa árs hafði íbúunum fjölgað í 394.324 og voru þar af 55.424 einstaklingar 67 ára og eldri, eða rúmlega 14% mannfjöldans. Hefur einstaklingum 67 ára og eldri á Íslandi því fjölgað um tæplega 27 þúsund frá aldamótum og mun að óbreyttu halda áfram að fjölga í þeim hópi á næstu árum. Magnús Árni segir þessa þróun munu skapa eftirspurn eftir starfsfólki í heilbrigðisgeiranum en með hliðsjón af núverandi stöðu þurfi að óbreyttu að flytja inn meira starfsfólk á því sviði til að manna heilbrigðis- og umönnunarstörf í framtíðinni. Hinn 25. júní síðastliðinn var hér í blaðinu fjallað um mikla uppbyggingu við Landspítalann við Hringbraut. Áætlað var að framkvæmdum við meðferðarkjarnann lyki í árslok 2029 en þá tæki við prófunartími og klínísk uppsetning fram á mitt ár 2030. Gert var ráð fyrir að byggingarnar þrjár sem nú er verið að reisa – rannsóknahúsið, hús heilbrigðisvísindasviðs og meðferðarkjarninn – yrðu komnar í fulla notkun árið 2030. Þessir stóru vinnustaðir munu kalla á margvíslega þjónustu, meðal annars dagleg þrif og reglubundið viðhald, fyrir utan sérhæft heilbrigðisstarfsfólk. Víðar er verið að byggja upp slíka innviði á Íslandi, meðal annars á Akureyri. Á miðopnu Morgunblaðsins í dag er fjallað um mikla fjölgun erlendra ríkisborgara í stærstu sveitarfélögum landsins frá miðju ári 2020 til miðs þessa árs. » 14 Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Trump ástfangin á Íslandi „Ég hélt ég myndi deyja“ City búið að finna arftaka Rodri Breiðablik - Dinamo Minsk, staðan er 3:2 Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Meint brot á leikskóla á borði héraðssaksóknara Skýjað og súld vestan til en bjart fyrir austan Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Óvenju margar fæðingar í júlí Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Þrettán sóttu um embætti forstjóra Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Trump ástfangin á Íslandi „Ég hélt ég myndi deyja“ City búið að finna arftaka Rodri Breiðablik - Dinamo Minsk, staðan er 3:2 Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Meint brot á leikskóla á borði héraðssaksóknara Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Óvenju margar fæðingar í júlí Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Þrettán sóttu um embætti forstjóra Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar