- What: The Icelandic parliament's Committee on Industry is seeking clarification from the Ministry of Industries and Innovation regarding proposed legislation on lumpfish fishing.
- Impact: The committee wants to understand the potential consequences for lumpfish fishermen if the bill is passed.
200 mílur | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 11:35 Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Það kom minnihluta atvinnuveganefndar á óvart þegar ákveðið var að draga til baka þá ákvörðun að senda spurningar nefndarinnar til Lagastofnunar HÍ. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ákveðið var á fundi atvinnuveganefndar Alþingis í gær að senda þær spurningar varðandi grásleppufrumvarpið, sem beina átti til Lagastofnunar Háskóla Íslands, til atvinnuvegaráðuneytisins. Sú varð niðurstaðan eftir að talsvert uppnám varð á Alþingi í fyrrakvöld í framhaldi af því að meirihluti atvinnuveganefndar ákvað á fundi fyrr um daginn að falla frá því að senda spurningarnar til Lagastofnunar. Áttu að skoða afleiðingarnar Þær spurningar sem beina átti til Lagastofnunar lúta m.a. að því hverjar afleiðingarnar yrðu fyrir grásleppuveiðimenn, þ.e. heimild þeirra til að halda áfram veiðum, yrði frumvarpið samþykkt á yfirstandandi þingi. Þá kom fram að í frumvarpinu væri mælt fyrir um að ráðherra skyldi í reglugerð kveða nánar á um skipulag grásleppuveiða og veiðitíma og gæti m.a. ákveðið að veiðileyfin væru bundin við ákveðið svæði og að einungis þeir bátar sem skráðir væru á því svæði fengju leyfi til veiða á því svæði. Frétt af mbl.is Grásleppufrumvarp aftur á dagskrá Þá gæti ráðherrann sett reglur um heimildir til flutnings leyfa til grásleppuveiða milli báta. Af því tilefni var spurt hvort drög að reglugerð um þetta lægju fyrir í ráðuneytinu og ef ekki, hvort slík reglugerð væri í bígerð. Einnig var spurt um hvort atvinnuvegaráðuneytið hefði lagt mat á hvort tilefni væri til að breyta staðbundnum veiðisvæðum grásleppu, frá því sem nú sé mælt fyrir um í 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og ennfremur hvort ráðuneytið teldi það samrýmast hinni stjórnskipulegu meðalhófsreglu að gera breytingar á stjórn veiða á grásleppu sem ættu að taka gildi þegar veiðitímabilið væri hafið og grásleppubátar að veiðum, líkt og mælt væri fyrir um í frumvarpinu. Loks var spurt hvort ráðuneytið teldi að fram hefði farið fullnægjandi mat á áhrifum frumvarpsins á stjórnarskrárvarin réttindi einstaklinga, þ.e. með sambærilegum hætti og hvíli á ráðherrum. Í fyrirspurninni var síðan vitnað til samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, ásamt gildandi reglum um starfshætti ríkisstjórnar. Meirihluti dró ákvörðun til baka Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins „Þann 3. febrúar sl. tók atvinnuveganefnd ákvörðun um að óska eftir því að Lagastofnun Háskólans legði mat á lögfræðilegan grundvöll þessa máls. Það kom okkur því mjög á óvart þegar formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, lagði fram tillögu á nefndarfundi á þriðjudagsmorgun sl. um að sú ákvörðun yrði dregin til baka,“ segir Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að nefndarmenn minnihlutans hafi ekki vitað betur en að undirbúningur erindisins til Lagastofnunar væri í lokafrágangi. „Þetta er allt mjög undarlegt og bendir til þess að formann atvinnuveganefndar, sem líka er framsögumaður málsins, hafi grunað að það gæti verið vont fyrir málið að fá niðurstöðu Lagastofnunar um grásleppufrumvarpið fram,“ segir Bergþór. „En það er greinilegt að það er vilji til þess hjá Samfylkingu og Viðreisn að klára þetta mál til þess að friða Flokk fólksins. Ég er því hæfilega bjartsýnn á að þeir flokkar séu líklegir til að stíga inn í þetta mál af einhverri skynsemi,“ segir hann. „Viðreisn og Samfylking virðast sitja og standa eins og Flokkur fólksins gerir kröfu um þessa dagana. Það er einhver ósögð saga þarna um hreðjatakið sem Inga Sæland virðist hafa á Samfylkingu og Viðreisn,“ segir Bergþór. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Engin aukning í loðnukvóta Línuskip Vísis landa góðum afla Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Engin aukning í loðnukvóta Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Línuskip Vísis landa góðum afla Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Beint: Andrew handtekinn Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Engin aukning í loðnukvóta Línuskip Vísis landa góðum afla Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Engin aukning í loðnukvóta Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Línuskip Vísis landa góðum afla Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Beint: Andrew handtekinn Ásökun um vanhæfi Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »