200 mílur | Morgunblaðið | 20.2.2026 | 6:30 Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Grásleppa Útgerðarmenn gera miklar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á grásleppufrumvarpinu svonefnda. Bréfum er ekki svarað. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Forsætisnefnd Alþingis hefur í engu svarað kvörtun Landssambands grásleppuútgerða sem send var nefndinni 5. febrúar sl. og Morgunblaðið hefur undir höndum. Þar eru bornar fram kvartanir og alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð og skort á rannsóknum á afleiðingum grásleppufrumvarpsins svokallaða, ásamt því að hæfi einstaka nefndarmanna í atvinnuveganefnd Alþingis er dregið mjög í efa. Kvörtunin er byggð á því að verulegur misbrestur hafi orðið á að farið sé að þingsköpum og að málsmeðferðin brjóti í bága við meginreglur um rannsóknarskyldu og hæfi, sem og vandaða lagasetningu. Segir þar að í málsmeðferð atvinnuveganefndar hafi verið vikið frá vönduðum hlutlausum vinnubrögðum sem áskilin séu við undirbúning lagasetningar. Látið hafi verið hjá líða að gera grein fyrir sjónarmiðum umsagnaraðila í nefndaráliti meirihluta atvinnuveganefndar og varnaðarorð höfð að engu. Frétt af mbl.is Meirihlutinn sagður vilja grásleppukvóta Bent er á að 80% grásleppuútgerða séu fylgjandi núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í grásleppu, en meirihluti nefndarinnar geri ekkert með það. Þá hafi lítið verið gert með athugasemdir Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar við frumvarpið sem hafi lýst yfir miklum áhyggjum af meðafla í grásleppuveiðum, þ.e. sjávarspendýrum og sjófuglum. Verði grásleppufrumvarpið að lögum leiði það til ólympískra veiða og hættulegrar sjósóknar sem hafi verið aflagðar með tilkomu núverandi aflamarkskerfis í grásleppu. Þá hafi atvinnuvegaráðuneytið verið skilið út undan þegar komi að umfjöllun um frumvarpið. Aflamark án samráðs Gerð er alvarleg athugasemd við að meirihluti atvinnuveganefndar hafi tekið sér vald til að ákvarða lágmarks upphafsaflamark í grásleppu án samráðs við Hafrannsóknastofnun eða ráðherra málaflokksins sem beri ábyrgð á slíkum ákvörðunum. Vinnubrögð meirihluta nefndarinnar, að líta fram hjá vísindalegum staðreyndum og sniðganga ráðuneyti sjávarútvegsmála, samrýmist ekki kröfum sem gerðar séu til stjórnvalda um hlutlæga rannsókn, sem skylt sé skv. dómi Hæstaréttar. Ríkið kunni að vera skaðabótaskylt þegar undirbúningur ákvarðana sé ólögmætur og skorti rannsókn, jafnvel þótt Alþingi komi að málinu. Óvönduð vinnubrögð atvinnuveganefndarinnar geti því leitt til skaðabótaskyldu ríkisins. Í bréfi landssambandsins er fullyrt að tilteknir nefndarmenn í meirihluta atvinnuveganefndar hafi sýnt af sér hlutdrægni við meðferð frumvarpsins og hafi persónulegra hagsmuna að gæta, ýmist beint eða í gegnum tengda aðila, sem geri þá vanhæfa til að fjalla um málið af þeirri hlutlægni sem krafist sé. Landssamband grásleppuútgerða bendir á að 80% grásleppuútgerða séu fylgjandi núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í grásleppu. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Grunur um óhreint mjöl „Við höfum rökstuddan grun um að a.m.k. þrír nefndarmanna hafi óhreint mjöl í pokahorninu þegar kemur að hagsmunagæslu innan fjölskyldna þeirra eða nátengdra aðila,“ segir Stefán Guðmundsson, formaður Landssambands grásleppuútgerða, í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt heimildum blaðsins eru þeir þrír nefndarmenn atvinnuveganefndar sem hér er vísað til þau Lilja Rafney Magnúsdóttir og Sigurjón Þórðarson, þingmenn Flokks fólksins, og Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingarinnar. Í bréfi landssambandsins er þess krafist að forsætisnefnd taki málið til sérstakrar skoðunar og meðferð þess verði frestað uns nefndin hafi lokið umfjöllun um málið. Þá er þess og krafist að forsætisnefnd kanni hvort málsmeðferð atvinnuveganefndar samræmist þingskapalögum og þeim kröfum sem gerðar eru til undirbúnings löggjafar; um undirbúning og frágang frumvarpa, rannsóknarskyldu og meðferð umsagna. Þá er þess krafist að tekið sé til skoðunar hvort einstaka nefndarmenn hafi með hagsmunatengslum og opinberri tjáningu gert sig vanhæfa til að fjalla um málið, í ljósi fordæma í dómum Hæstaréttar um hlutlægni við undirbúning vandaðrar löggjafar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Ásökun um vanhæfi Haag-ákvæði þarf samþykki Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Haag-ákvæði þarf samþykki Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Línuskip Vísis landa góðum afla Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Ásökun um vanhæfi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ „Góða loðnuvertíðin“ Fleira áhugavert Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Ásökun um vanhæfi Haag-ákvæði þarf samþykki Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Haag-ákvæði þarf samþykki Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Línuskip Vísis landa góðum afla Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Ásökun um vanhæfi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ „Góða loðnuvertíðin“ Fleira áhugavert „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »