Stefáni Guðmundssyni, talsmanni Landssambands grásleppuútgerða, líst afar illa á afturköllun kvótasetningar á grásleppu sem Alþingi samþykkti í vikunni. Hann segir sambandið ósátt bæði við niðurstöðuna og við vinnubrögðin við meðferð málsins. Að hans sögn hafi lítið tillit verið tekið til fjölda umsagna sem bárust um frumvarpið. Segir grásleppuna keyrða í gegn af offorsi „Þetta er búið að vera alveg ótrúlegt ferli að fylgjast með og ég veit ekki hver reisnin er yfir ríkisstjórninni þegar hún ákveður að ráðast á minnsta útgerðarhópinn og nota hann sem skiptimynt fyrir ESB-bröltið,“ segir Stefán. „Ríkisstjórnin hefur mótmælt því en það er náttúrulega deginum ljósara og var rækilega staðfest að þegar það var búið að keyra grásleppuna í gegn af offorsi og ófagmennsku daginn eftir var Evrópusambandsvegferðin kynnt.“ Um hvað snýst málið? Í mjög einfölduðu máli snúast lögin um þetta: Fyrir yfirstandandi fiskveiðiár og það síðasta, var ákveðið að takmarka hve mikið hver sjómaður má veiða af grásleppu. Það var gefinn út kvóti . Árin á undan var veiðunum stýrt með sóknardagakerfi , hver sjómaður mátti veiða eins og mikið og hann gat, en aðeins í takmarkaðan fjölda daga á ári. Þykir illa staðið að meðferð málsins Að sögn Stefáns ríkir ekki einungis ósætti yfir ákvörðuninni sjálfri heldur líka yfir því hvernig staðið var að meðferð málsins. Hann segir ekkert tillit hafa verið tekið til aðsendra umsagna og álita sem töluðu gegn frumvarpinu. „Það á náttúrulega ekki að þekkjast að útgerðarhópar séu að henda útgerðarhópum aftur í ólympískar veiðar sem allir voru að gefast upp á. Ég get nefnt sem dæmi að í þessum hópi grásleppuútgerða lögðu 229 bátar upp laupana á síðustu ellefu árum vegna dagakerfisins og ólympískra veiða.“ „Hrafnaspark frá A til Ö“ Spurður hvort til standi að fara í mál vegna breytinganna segir Stefán það ekki liggja fyrir að svo stöddu. „Við erum svona bara rétt að skoða og greina hvaða leiðir eru fram undan en það er náttúrulega algjörlega ljóst að þar til bærir aðilar, hvort sem það eru dómstólar eða aðrir, þurfa auðvitað að fá þennan pakka til skoðunar. Vegna þess að öll málsmeðferðin er hrafnaspark frá A til Ö og er ekki í neinu samhengi við skráðar reglur ríkisstjórnarinnar, til dæmis um vinnu og undirbúning annarra frumvarpa sem eru á hennar vegum.“