Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur endurráðið yfir 300 verkfræðinga til að sinna gæðaeftirliti vegna mistaka gervigreindar. Á vef BBC segir að gervigreindarlausnir hafi ekki uppfyllt þær væntingar sem til þeirra voru gerðar. Charles Poon, varaforseti vélbúnaðarverkfræðideildar Ford, viðurkenndi að fyrirtækið hefði ekki nýtt þekkingu og reynslu elstu verkfræðinga fyrirtækisins áður en þeir yfirgáfu Ford. „Gervigreind er frábært tæki, en hún verður aldrei betri en þær upplýsingar sem notaðar eru til að þjálfa hana,“ sagði Poon við blaðamenn. Sjá einnig Hefja framleiðslu á ný eftir skæðan eldsvoða Ford er eitt fjölmargra stórfyrirtækja sem hafa fjárfest í gervigreindartækni í von um að auka framleiðni og draga úr kostnaði. Rekstrarstjóri fyrirtækisins sagði í október í fyrra að Ford væri að setja upp 900 myndavélakerfi sem knúin væru af gervigreind til að greina gæðavandamál. Fyrirtækið segir að verið sé að endurráða starfsfólkið til að þjálfa gervigreindarkerfin og starfa sem leiðbeinendur fyrir yngri starfsmenn.