Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Naumt tap Íslands í Tókýó

Read Full Article →

Japanar fjölmenntu á völlinn í dag, uppselt var því 70 þúsund áhorfendur mættu til að sjá japanska liðið í síðasta sinn áður en það heldur á HM sem hefst eftir nokkra daga. Íslenska liðið lék vel í dag í fremur bragðdaufum leik, en á 87. mínútu tókst heimamönnum þó að koma fyrirgjöf inn á teig Íslands þar sem Koki Ogawa var á undan Aroni Einari Gunnarssyni í boltann og skallaði hann í stöngina og inn og kom Japan þar með yfir í 1-0. Manni færri þegar markið var skorað Reyndar var sérstakt að Ísland hafði gert tvöfalda skiptingu tveimur mínútum fyrir markið þar sem Hjörtur Hermannsson kom inn á fyrir Daníel Leó Grétarsson og Ísak Snær Þorvaldsson átti að koma inn fyrir Kristian Nökkva Hlynsson. Kristian kom að velli en Ísak fékk ekki leyfi til að koma inn á fyrr en eftir markið, og Íslendingar voru því manni færri á vellinu þegar markið var skorað. Íslenska liðið hélt boltanum svo að mestu í uppbótartímanum en ógnaði þó aldrei almennilega og 1-0 sigur Japans varð niðurstaðan. Ísland mætir svo Argentínu í Bandaríkjunum í vináttuleik 9. júní en HM hefst ellefta sama mánaðar.

Share this article