Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Húllumhæ í Paragvæ — forsetinn boðar frí

Read Full Article →

Paragvæska þjóðin fagnar sigri sínum gegn Þýskalandi á HM í fótbolta gríðarlega. Santiago Pena, forseti landsins, tilkynnti skömmu eftir leikinn að dagurinn í dag yrði opinber frídagur samkvæmt tilskipun forseta. Paragvæ hafði betur í vítaspyrnukeppni gegn Þjóðverjum og fer því áfram í 16-liða úrslit. Staðan var 1-1 eftir 90 mínútur og framlengingu. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út í höfuðborginni Asuncion. „Í dag fagnar heil þjóð. Við fögnum sigri liðs sem táknar dýpstu rætur þjóðarsálar okkar: dugnað, trú og styrk fólks sem gefst aldrei upp. Takk Albirroa (þeir hvítu og rauðu) fyrir að gefa okkur þessa gríðarlegu gleðistund og fyrir að sameina enn og aftur milljónir Paragvæja undir einu flaggi. Tilskipun númer 6280: Bestu hlutirnir eru biðarinnar virði. Áfram Paragvæ.“ Forseti Paragvæ hefur gefið öllum þar í landi frídag eftir að landsliðið vann Þýskaland á HM í fótbolta. Paragvæjar höfðu betur eftir vítaspyrnukeppni og fara áfram í 16-liða úrslit. Einu sinni komist í átta liða úrslit Paragvæ hefur níu sinnum verið með á HM. Lengst komst liðið í 8-liða úrslit á HM 2010 en síðan þá hefur liðið ekki komist á HM. Liðið fór illa af stað á HM í ár og mátti þola 4-1 tap gegn heimamönnum í Bandaríkjunum. Liðsmenn þess náðu sér aftur á strik og komust áfram sem eitt af bestu liðunum í 3. sæti. Nú mun liðið mæta sigurvegaranum úr leik Frakklands og Svíþjóðar sem fer fram í dag.

Share this article