Þjóðverjar voru mikið meira með boltann allan leikinn í Boston í kvöld en það voru Paragvæjar sem gerðu þó meira framan af leik. Þeir fengu bestu færi fyrri hálfleiks og skoruðu eina markið. Það gerði Julio Enciso á 42. mínútu. Þjóðverjar hresstust í seinni hálfleik og Kai Havertz jafnaði metin á 54. mínútu. Fleiri urðu mörkin í hálfleiknum þó ekki og því tók við framlenging; sú fyrsta á þessu móti. Mark en ekki mark Þjóðverjar komust yfir á 103. mínútu þegar Jonathan Tah skallaði boltann af krafti í netið eftir horn. Myndbandsdómarar tóku hins vegar eftir broti í vítateignum og var dómarinn sendur í skjáinn. Hann tók undir og dæmdi brot á Waldemar Anton gegn markverðir Paragvæ, Orlando Gill, og áfram stóð því 1-1. 1-1 stóð að lokinni framlengingunni og því var vítakeppni næst. Hvorugt lið áður tapað vítakeppni á HM Bæði Þýskaland og Paragvæ höfðu átt góðu gengi að fagna í vítakeppnum á HM. Þjóðverjar höfðu unnið allar fjórar vítakeppnir sínar og skorað úr 17 af 18 vítum. Paragvæ hafði unnið sína einu vítakeppni og skoraði þá úr öllum fimm vítum sínum. Eitthvað varð því undan að láta í kvöld og það var Þýskaland. Vítakeppnin fór alla leið í bráðabana eftir að Orlando Gill varði tvö víti Þjóðverja. Á móti því skutu Paragvæjar einu sinni framhjá og Manuel Neuer varði eitt víti. Í bráðabananum skaut Tah svo hátt yfir mark Paragvæ og Jose Canale tryggði sigurinn. Paragvæ mætir Frakklandi eða Svíþjóð í 16-liða úrslitum en þau mætast annað kvöld.