Gistinóttum á hótelum fækkaði um 0,4% í júní miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru rúmlega 532 þúsund gistinætur á hótelum í mánuðinum, samanborið við tæplega 535 þúsund í júní í fyrra. Á sama tíma jókst framboð hótelherbergja um 3,3% á landsvísu og herbergjanýting dróst saman um 1,6 prósentustig. Samdrátturinn var mestur á höfuðborgarsvæðinu, þar sem nýting lækkaði um 3,4 prósentustig. Mest fjölgaði gistinóttum á Suðurlandi, um 10,9%, og um 5,8% á Norðurlandi. Hins vegar fækkaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um 6,5%, sem jafngildir rúmlega 16 þúsund færri gistinóttum en í júní í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum nánast óbreyttur frá fyrra ári, en aukningin nam 0,4%. Erlendir ferðamenn stóðu undir um 91% gistinátta á hótelum í júní. Gistinóttum þeirra fækkaði um 0,5% á milli ára, en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 1,1%. Af einstökum þjóðernum fækkaði gistinóttum Bandaríkjamanna um 8,5% og Þjóðverja um 16,5%, á meðan gistinóttum Kínverja fjölgaði um 31%.