- What: USMCA trade agreement negotiations continue
- Impact: Affects international trade between the US, Canada, and Mexico
Bandaríkin, Kanada og Mexíkó héldu formlegar viðræður í gær um framtíð USMCA-fríverslunarsamningsins. Á vef BBC er fjallað um málið en þar segir meðal annars að ríkin hafi til 1. júlí til að ljúka endurskoðun samningsins. USMCA er fríverslunarsamningur milli landanna þriggja sem kom í stað NAFTA-samningsins sem hafði verið í gildi síðan 1994. Ef fresturinn líður hjá án samkomulags mun USMCA haldast í gildi til ársins 2036. Þjóðirnar geta þá annaðhvort endurnýjað samninginn til 2042, haldið áfram að endurskoða hann á hverju ári eða gengið úr samningnum með sex mánaða fyrirvara. Sjá einnig „Við erum öll sterkari saman“ Samkvæmt könnun sem gerð var á síðasta ári telja 75% Bandaríkjamanna að USMCA-fríverslunarsamningurinn, sem er metinn á 1,6 billjónir dala í milliríkjaviðskiptum, hafi gagnast hagkerfinu. Donald Trump hefur þó lýst því yfir að hann vilji láta samninginn renna út í sandinn og segist ekki tilbúinn að endurnýja hann. Helstu ádeilur samningsins eru meðal annars aðgengi bandarískra mjólkurframleiðenda að kanadískum markaði, skattar á bandarískar streymisveitur og tollar á stál, ál og bifreiðar. Bandaríkin og Kanada voru nálægt samkomulagi síðasta haust en viðræður hrundu eftir að auglýsing frá kanadískum stjórnvöldum birtist í október. Auglýsingin, sem fór illa í Donald Trump, sýndi Ronald Reagan fjalla um tolla með neikvæðum hætti.