Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

BMW eykur rafbílaframleiðslu í Bandaríkjunum

Read Full Article →

Þýski bílaframleiðandinn BMW tilkynnti í dag að fyrirtækið muni hefja framleiðslu á rafbílum í Bandaríkjunum fyrir árslok. Á vef New York Times segir að fyrsti rafbíllinn verði jepplingur af gerðinni iX5 og að hann verði framleiddur í Spartanburg í Suður-Karólínu. Stefnt er að því að framleiða sex tegundir rafbíla í verksmiðjunni fyrir 2030 en Spartanburg er ein stærsta og mikilvægasta verksmiðja BMW utan Þýskalands. Ákvörðun BMW stangast á við stefnu fjölmargra bílaframleiðenda sem hafa annaðhvort frestað eða hætt við áætlanir um aukna rafbílaframleiðslu. Ástæðurnar hafa meðal annars verið dræm eftirspurn í Bandaríkjunum og ákvörðun stjórnvalda um að hætta niðurgreiðslum á rafbílakaupum. Sjá einnig Bandarísk stjórnvöld undirbúa rafbílagjald Um helmingur þeirra rúmlega 400 þúsund bíla sem BMW framleiddi í Spartanburg á síðasta ári var fluttur úr landi. Fyrirtækið nýtur þannig sterkrar eftirspurnar eftir rafbílum í Evrópu, þar sem um fimmtungur nýskráðra bíla eru rafbílar. Keppinautar BMW hafa hins vegar ekki jafnsterka stöðu í Evrópu. Ford viðheldur til að mynda aðeins 3% markaðshlutdeild í álfunni og er Honda með aðeins 1% hlutdeild. General Motors selur jafnframt mjög takmarkað magn af Cadillac-rafbílum á evrópskum markaði.

Share this article