Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Þetta hefur verið algjör hörmung“

Read Full Article →

„Það er bara búið að vera afspyrnurólegt hjá okkur, mjög dapurt,“ segir Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Birtingi NK 119, sem er á þorskslóð á Fætinum fyrir austan land þegar rætt er við hann fyrir hádegi í gær. Birtingi var haldið til veiða á miðvikudagskvöld í síðustu viku og ládeyða var í veiðinni allan tímann. „Þetta hefur verið algjör hörmung,“ segir Einar Ólafur hreint út um aflabrögðin. Hljóti að fara að breytast Einar Ólafur jánkar því að þetta sé óvenjulélegt. „Það ætti nú að vera kominn meiri fiskur hérna,“ segir hann og kveðst ekki hafa skýringar á þessu. „Það er ekki hægt að fara eftir einhverjum dagbókum, þetta er bara breytilegt. En þetta hlýtur að fara að breytast.“ Gangi betur annars staðar Birtingur NK 119 í apríl síðastliðnum. Mynd/Jón Steinar Sæmundsson Þótt illa gangi á veiðislóðinni hjá Birtingi í augnablikinu segir Einar Ólafur betur ganga annars staðar. „Þeir eru að fiska fínt strandveiðibátarnir hérna ofar. Það var ýsuveiði og eitthvað bland á Mýrargrunni, Stokksnesgrunni og Papagrunni. Það er mikið af frystitogurum þar en við höfum fengið frekar lítið í kringum þá,“ segir Einar Ólafur. Með lítinn afla í land Áður en áhöfnin á Birtingi fór að reyna fyrir sér á Fætinum segir Einar Ólafur þá hafa byrjað á Mýrargrunni. „Þar var rólegt og við fórum á Ingólfshöfða og svo austur um,“ segir hann. Ætlunin sé að landa nú að morgni miðvikudags og að það verði frekar lítill afli. „Og ég veit ekki hvert hugurinn tekur mann næst.“ „Fiskur á ferðinni þó að við fáum hann ekki allan“ Aðspurður segir Einar Ólafur að þrátt fyrir þessa dræmu veiði hjá Birtingi berist eflaust nægur afli til vinnslu hjá Síldarvinnslunni. „Þeir eru búnir að fá ágætt á Vestmannaey og Bergey,“ segir hann. Þessi skip hafi verið á Vík og Pétursey og Ingólfshöfða. „Það er einhver fiskur á ferðinni þó að við fáum hann ekki allan.“ Einar Ólafur er bjartsýnn á að úr rætist. „Það þarf að taka þessa leiðinlegu túra líka. Það væri lítið spennandi ef það væri hægt að ganga að þessu öllu vísu,“ bendir hann á. Laus úr kokteilhristaranum Fremur skammt er síðan Birtingur komst í eigu Síldarvinnslunnar frá Skinney-Þinganesi.„Þetta er mjög fínt sjóskip,“ segir Einar Ólafur um Birting. Hann var áður á Jóhönnu Gísladóttur, sem hann kveður hafa verið öðruvísi skip. Búnaðurinn í Birtingi sé mikið betri. „Birtingur er líka mikið betra sjóskip. Jóhanna Gísla var alveg eins og kokteilhristari. Þó að mér líkaði vel við hana var hún ekki sérstaklega skemmtileg í sjó.“

Share this article