Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði um 60 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær. „Þessi 60 tonn sem við vorum með voru mest þorskur og síðan helst ýsa og karfi. Við hófum túrinn á Gerpisflakinu en vorum síðan mest úti á Þórsbanka og Verkamannabanka,“ segir Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Staðreyndin er sú að það mætti vera meira af fiski á ferðinni hér fyrir austan land, en oft hefur aflast vel á miðum hér eystra á þessum árstíma. Við leituðum talsvert en það var engin kraftveiði að undanskildu einu holi. Veður var fínt allan túrinn og ekki hægt að kvarta undan neinu í þeim efnum,” sagði Hjálmar Ólafur. Birtingur hélt á ný til veiða síðdegis í gær.