Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Góður afli í Litladýpi

Read Full Article →

Ísfisktogarinn Birtingur NK landaði 90 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað í gær. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sagði í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar að fjórðungur aflans hefði verið ýsa en síðan var hann að mestu þorskur. „Við hófum veiðiferðina á Glettingi í leit að ýsu. Þar vorum við í eina þrjá sólarhringa með litlum árangri. Þetta var bara smánudd. Að því loknu var haldið suður á Fótinn og á Örvæntingu og þar var einnig heldur lítið að hafa. Loks var farið í Litladýpið og þar fékkst góður afli í lok túrsins." „Fiskiríið hér eystra um þessar mundir er í rólegri kantinum fyrir minn smekk en þó eru menn að hitta í eitthvað annað slagið. Menn reyna reglulega við ýsuna með takmörkuðum árangri. Fiskurinn sem fæst er hins vegar ágætur og hentar örugglega vel í vinnsluna. Ég held að fiskgegnd aukist með haustinu en staðreyndin er að það er sumartíð ennþá hérna fyrir austan þó komið sé fram í september,” sagði Einar Ólafur. Birtingur hélt á ný til veiða í gærkvöldi.

Share this article