Sabri Lamouchi var fyrsti landsliðsþjálfarinn sem fór með lið á HM til að taka pokann sinn, en hann var einfaldlega rekinn sem þjálfari Túnis strax eftir fyrsta leik liðsins á mótinu sem var stórtap fyrir Svíþjóð. Steve Clarke þjálfari Skotlands sagði starfi sínu lausu þegar ljóst var að árangur Skota í riðlakeppni HM dugði ekki til að liðið kæmist í 32-liða úrslit. Hong Myung-bo landsliðsþjálfari Suður-Kóreu hrökklaðist úr starfi eftir mikla gagnrýni heima fyrir þegar kóreska liðið féll úr leik eftir riðlakeppni HM. Þetta er í annað sinn sem Hong Myung-bo stýrir Suður-Kóreu á HM og í bæði skiptin lét hann af störfum eftir mótið vegna ófullnægjandi árangurs. Miroslav Koubek sagði upp störfum sem landsliðsþjálfari Tékklands eftir lélegt gengi Tékka á mótinu. Liðið komst ekki upp úr riðlakeppni HM. Marcelo Bielsa landsliðsþjálfari Úrúgvæ sagði sömuleiðis starfi sínu lausu eftir mikil vonbrigði. Úrúgvæ sat nefnilega eftir í riðlakeppninni sem var langt undir væntingum í Úrúgvæ. Ronald Koeman hætti svo sem landsliðsþjálfari Hollands eftir að hollenska liðið féll út í 32-liða úrslitum HM fyrir Marokkó eftir vítaspyrnukeppni. Hvað verður með Nagelsmann? Líklegt er að fleiri bætist á þennan lista eftir því sem heimsmeistaramótinu vindur fram. Julian Nagelsmann þjálfari Þýskalands sagði við fjölmiðla eftir að þýska liðið féll óvænt út fyrir Paragvæ að hann vildi halda áfram störfum fyrir þýska liðið ef knattspyrnusambandið í Þýskalandi hefði áfram trú á honum. Þá er ljóst að Didier Deschamps mun hætta sem landsliðsþjálfari Frakklands eftir heimsmeistaramótið. En það hefur legið fyrir í þó nokkurn tíma. Deschamps hefur stýrt Frökkum í 14 ár. Talið er næsta víst að Zinendine Zidane takið við keflinu af Deschamps eftir mótið.