Knattspyrnusamband Túnis rak landsliðsþjálfarann Sabri Lamouchi strax eftir fyrst leik liðsins á HM karla í fótbolta. Ákvörðunin var tekin eftir 5–1 tap gegn Svíum í fyrsta leik liðsins í F-riðli. Lamouchi tók við liðinu í janúar á þessu ári en náði aðeins að stýra því í fimm leikjum. Sabri Lamouchi í leiknum gegn Svíum í nótt.AP / Matias Delacroix Samkvæmt fjölmiðlum í Túnis var ákvörðunin tekin á neyðarfundi sambandsins skömmu eftir leikinn. Tæknistjóri sambandsins, Mondher Kebaier, er sagður líklegastur til að taka við liðinu tímabundið fyrir næstu leiki á mótinu. Túnis á eftir að mæta Japan og Hollandi.