Herve Renard sem stýrði Sádi-Arabíu inn á heimsmeistaramótið í fótbolta sem nú stendur yfir var rekinn frá Sádum 17. apríl. Hann er engu að síður mættur á HM sem landsliðsþjálfari, því hann var í dag ráðinn til að stýra Túnis út mótið. Túnis byrjaði HM illa því liðið tapaði 5-1 fyrir Svíþjóð í gær. Eftir leikinn var Sabri Lamouchi látinn axla sín skinn og var rekinn sem landsliðsþjálfari Túnis og nú degi síðar hefur Herve Renard verið ráðinn í staðinn. Sérfræðingur í þjálfun afrískra liða Renard er því mættur á þriðja heimsmeistaramótið í röð sem landsliðsþjálfari því hann stýrði Marokkó á HM 2018 og Sádi-Arabíu á HM 2022. Túnis er sjöunda landsliðið sem Renard þjálfar. Hann hafði áður verið landsliðsþjálfari Sambíu í tvígang, Angóla, Fílabeinsstrandarinnar, Sádi-Arbaíu í tvígang, Marokkó og þjálfaði franska kvennalandsliðið í rúmt ár. Renard fær snarpan undirbúning fyrir fyrsta leik hjá Túnis sem verður við Japan á laugardag. Túnis spilar svo við Holland 25. júní á HM.