Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Inchcape á Íslandi velti 31,2 milljörðum

Read Full Article →

Inchcape á Íslandi, móðurfélag bílaumboðanna Öskju og Unu, Dekkjahallarinnar og Landfara, hagnaðist um 232 milljónir króna á síðasta ári. Félögin fjögur, sem voru í fyrra seld inn í samstæðu breska félagsins Inchcape PLC sem skráð er í kauphöllina í London, veltu samanlagt um 31,2 milljörðum króna og jókst veltan verulega frá fyrra ári þegar hún nam 23,1 milljarði króna. Hjá félögunum fjórum störfuðu samtals um 250 manns að jafnaði á árinu. Sneri tapi í hagnað Stærsta félag samstæðunnar er Bílaumboðið Askja, umboðsaðili fyrir meðal annars Kia, Mercedes-Benz, smart og Honda. Velta félagsins nam tæpum 24,9 milljörðum króna og jókst úr 19 milljörðum króna árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) jókst úr 50,5 milljónum króna í 322 milljónir og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) fór úr 257 milljónum króna í 817 milljónir. Afkoma félagsins snerist úr 132,3 milljóna króna tapi árið 2024 í 96,6 milljóna króna hagnað. Afkoma ársins varð fyrir neikvæðum áhrifum af einskiptiskostnaði sem féll til á árinu meðal annars vegna niðurfærslu eigna að fjárhæð 225 milljónir króna og gjaldfærðum kostnaði við endurskipulagningu. Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju og Inchcape á Íslandi, segir árið 2025 hafa verið viðburðaríkt og er ánægður með afkomuna. „Árið 2025 var mjög viðburðarríkt fyrir okkur. Við urðum hluti af Inchcape sem starfar á 40 mörkuðum um allan heim og vinnur með flestum af stærstu bílaframleiðendum veraldar. Rekstur okkar á Íslandi gekk vel. Við höfum verið í stöðugri uppbyggingu síðustu ár með fjölgun vörumerkja í bílum þar sem ný merki eins og smart og XPENG hafa náð verulegum árangri hjá okkur á skömmum tíma.“ Mikil sala seinni hluta ársins Askja seldi 2.560 fólksbíla í fyrra og var markaðshlutdeild félagsins 17,9%. Kia var söluhæsta fólksbílamerkið á Íslandi annað skiptið á síðustu fimm árum, með 2.001 seldan bíl. Sala fólksbíla jókst einkum á seinni hluta ársins, meðal annars vegna breytinga á tollum undir lok árs sem juku eftirspurn. Í aðdraganda breytinganna voru fleiri bílar fluttir inn, einkum fyrir bílaleigur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article