Inchcape á Íslandi, móðurfélag bílaumboðanna Öskju og Unu, Dekkjahallarinnar og Landfara, hagnaðist um 232 milljónir króna á síðasta ári. Félögin fjögur, sem voru í fyrra seld inn í samstæðu breska félagsins Inchcape PLC sem skráð er í kauphöllina í London, veltu samanlagt um 31,2 milljörðum króna og jókst veltan verulega frá fyrra ári þegar hún nam 23,1 milljarði króna. Hjá félögunum fjórum störfuðu samtals um 250 manns að jafnaði á árinu. „Kia var mest selda vörumerkið á Íslandi í annað skipti á fimm árum og ef við tökum árið í ár er Kia enn söluhæsta bílamerkið á Íslandi. Dekkjahöllin hefur bætt við starfsstöðvum í Garðabæ og Njarðvík og er núna á sex stöðum í kringum landið. Landfari hefur sömuleiðis opnað nýtt þjónustuverkstæði í Hafnarfirði og stækkaði í Klettagörðum,“ segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju og Inchcape á Íslandi. Spurður um hvernig félagið sé búið undir það að takast á við harða samkeppni á Íslandi kveðst hann bjartsýnn. „Við erum vel í stakk búin að takast á við komandi ár. Á undanförnum níu mánuðum höfum við unnið að samþættingu við Inchcape, okkar nýja eiganda. Það hefur verið stórt verkefni og við erum núna í raun að vinna eins og skráð félag, enda hluti af skráðu félagi í kauphöll í London. Þetta hefur verið lærdómsríkt ferli og spennandi viðfangsefni fyrir starfsfólk félaganna.“ Jón Trausti segir samstæðuna búa yfir frábærri samsetningu vörumerkja og þjónustu og fyrirtækin fjögur séu í góðri stöðu til að takast á við komandi ár með sterku framboði á markaði sem sé að ganga í gegnum orkuskipti á miklum hraða. „Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur bílasala haldið sér frá fyrra ári,“ segir Jón Trausti spurður um rekstur yfirstandandi árs. „Um miðjan júní var meira að segja lítilleg aukning frá fyrra ári, sem er jákvætt þar sem bílaleigur hafa aðeins dregið saman vegna vörugjaldabreytinga og hárra vaxta.“ Hann kveðst frekar ánægður með markaðinn almennt séð. „Hann er stærri og sterkari en ég átti von á og þrátt fyrir samdrátt til dæmis í sölu á fasteignum er bílasala þokkalega góð, bæði í nýjum og notuðum bílum. Einstaklingar og fyrirtæki hafa drifið þetta áfram og rafbílavæðingin hefur verið hvatinn í þeim efnum. Á þessu ári er orkustyrkur 500 þúsund krónur fyrir nýja rafbíla og mun að öllu óbreyttu lækka um næstu áramót. Það gefur tilefni til þess að sala rafbíla verði sterk næstu mánuði.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .