Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mun ekki spila fyrir liðið á meðan Thiaw er við völd

Read Full Article →

Senegal mátti þola grátlegt tap fyrir Belgíu í 32-liða úrslitum HM í fótbolta í gærkvöld. Liðið leiddi 2-0 lengi vel en leiknum var framlengt og sigurmark Belga kom úr víti í blálok framlengingar. Senegalar eru á heimleið en Pape Gueye, miðjumaður, sagði í viðtali eftir leik að hann ætli að taka sér hlé frá landsliðinu meðan núverandi þjálfarateymi sé við völd. Gueye byrjaði inná í gær en var tekinn af velli eftir rúmlega klukkustundar leik. Það hefur gustað um Pape Thiaw, aðalþjálfara liðsins að undanförnu. Hann fékk til að mynda sekt frá afríska knattspyrnusambandinu eftir úrslitaviðureign liðsins við Marokkó á Afríkumótinu í byrjun árs. Þar skipaði hann liðinu að yfirgefa völlinn, sem leikmenn gerðu í um 17 mínútur, sem olli því svo að titillinn var dæmdur af Senegal. Thiaw fékk sekt sem nam tæplega 13 milljónum íslenskra króna. „Ég tilkynni í dag að svo lengi sem þetta þjálfarateymi er við lýði, þá mun ég taka mér hlé frá landsliðinu,“ sagði Pape Gueye eftir leikinn. Pape Gueye leikur með Villareal á Spáni.

Share this article