Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hálf ótrúleg endurkoma Belga – „Eins og að taka Jordan og Pippen út af“

Read Full Article →

Þetta var hálf ótrúleg endurkoma sem Belgar náðu í 32-liða úrslitum gegn Senegal. Þeir voru á leið út úr mótinu, tveimur mörkum undir, en náðu að vinna 3-2. Senegal var mun sterkari aðilinn og það leit nákvæmlega ekkert út fyrir að Belgar gætu náð endurkomu. Senegal komst yfir á 25. mínútu með marki Diarra. Senegal skoraði svo annað markið á 51. mínútu er Ismail Sarr skoraði glæsilegt mark. Rudi Garcia tók lykilmennina de Bruyne og Doku út á 56. mínútu og belgískir aðdáendur trúðu ekki sínum eigin augum. Belgar skoruðu svo tvö mörk á 86. og 89. mínútu en fram að því leit ekkert út fyrir að þeir væru að fara að skora. Lukaku og Tielemans gerðu mörkin. „Þetta er eins og að taka Jordan og Pippen út af,“ sagði Eiður Smári sem lýsti ásamt Gunnari Birgissyni, þegar Garcia tók tvíeykið de Bruyne og Doku út af. Enginn skorað seinna í HM sögunni Framlengingin var bragðdauf en Senegal voru þó hættulegri. Undir lok hennar vann fyrirliðinn Tielemans vítaspyrnu er Camara braut á honum. Tielemans skoraði af miklu öryggi og markið kom á 124. mínútu. Mikil ringulreið var í kringum brotið og mátti meðal annars sjá pot í eyra, olnbogaskot og þvögu á punktinum. Boltinn fór í netið eftir 124 mínútur og 44 sekúndur og er það met á HM. Aldrei hefur mark verið skorað seinna í sögu mótsins. Allt það helsta úr leiknum. Belgar unnu 3-2 endurkomusigur gegn Senegal. Þjálfarinn Rudi Garcia tók stjörnuleikmenn sína de Bruyne og Doku út í stöðunni 2-0. Ekkert leit út fyrir að Belgía væri að fara að jafna en mörkin komu undir lok leiks. Hvað bíður þeirra? Belgar mæta sigurvegurunum úr leik Bandaríkjanna og Bosníu og Hersegóvínu í 16-liða úrslitum. Leikurinn fer fram klukkan 00:00 í nótt. Leikurinn verður í Seattle, líkt og í dag. Sérfræðingar í endurkomu Belgar unnu einnig tveggja marka endurkomu á HM 2018 gegn Japan. Þá kláruðu rauðu djöflarnir málið í venjulegum leiktíma en þeir þurftu framlengingu í þetta sinn.

Share this article