Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vill gefa stjórnvöldum 5% hlut

Read Full Article →

OpenAI hefur rætt við bandarísk stjórnvöld um að ríkið fái 5 prósenta hlut í fyrirtækinu. Með því vill fyrirtækið draga úr pólitískum hindrunum og samræma hagsmuni sína betur hagsmunum stjórnvalda og almennings. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Sam Altman, forstjóri OpenAI, hefur haldið því fram að eignarhlutur almennings sé besta leiðin til að tryggja að ávinningur gervigreindar skili sér víðar. Samkvæmt heimildarmönnum hefur hann nefnt 5 prósenta hlut í fyrstu samtölum við stjórnvöld. Hugmyndin gengur út á að önnur bandarísk gervigreindarfyrirtæki leggi fram sambærilegan hlut, þótt óljóst sé hvort þau myndu fallast á það. Slíkt fyrirkomulag gæti styrkt tengsl fyrirtækjanna við stjórnvöld og mildað pólitíska gagnrýni með því að deila hluta auðsins sem gervigreind skapar með almenningi. Áhyggjur stjórnvalda og almennings hafa aukist vegna mikillar uppbyggingar gagnavera, áhrifa gervigreindar á störf og netöryggi. OpenAI Foundation, óhagnaðardrifinn armur félagsins, sagði í maí að í framtíð þar sem gervigreind gegnir lykilhlutverki þyrfti samfélagið líklega nýjar leiðir til að tryggja fólki varanlega hlutdeild í þeim kerfum sem skapa verðmæti. Altman og aðrir stjórnendur OpenAI hafa lagt til að hluturinn færi í sjóð að fyrirmynd Alaska Permanent Fund, sem ávaxtar olíuauð Alaska og greiðir arð til ríkisins og íbúa. Fyrirtæki á borð við Anthropic, Google og Meta gætu fallið undir slíkt kerfi, þó afstaða þeirra liggi ekki fyrir. Viðræðurnar eru sagðar á frumstigi og hugsanlega þyrfti samþykki þingsins. Altman hefur rætt málið við Trump, ráðherra í stjórn hans, og Bernie Sanders öldungadeildarþingmann, sem vill mun stærri opinberan hlut. OpenAI og Anthropic, tvö af stærstu bandarísku gervigreindarfyrirtækjunum, undirbúa bæði skráningu á hlutabréfamarkað, þótt nákvæm tímasetning liggi ekki fyrir.

Share this article