Gervigreindarfyrirtækið OpenAI, sem þróar spjallmennið ChatGPT, á í viðræðum við fjárfesta um lokaða hlutafjáraukningu í aðdraganda fyrirhugaðs frumútboðs félagsins. Fyrirtækið horfir til þess að vera metið á 1,2 þúsund milljarða dala í fjármögnunarlotunni, samkvæmt heimildum Financial Times . Gangi það eftir yrði félagið þrettánda verðmætasta fyrirtæki heims og færi þannig fram úr fyrirtækjum á borð við Berkshire Hathaway og JP Morgan Chase. OpenAI horfir með þessu til þess að nýta sér meðbyr vegna aukinnar eftirspurnar eftir vörum fyrirtækisins í kjölfar útgáfu nýjustu líkana þess, GPT-5.6 í júlí og Astra fyrr í þessum mánuði. OpenAI sótti 122 milljarða dala – sem jafngildir þrefaldri vergri landsframleiðslu Íslands í fyrra - í fjármögnunarlotu í mars síðastliðnum þar sem félagið var metið á 852 milljarða dala (e. post valuation). Viðræður við fjárfesta eru enn á fyrstu stigum og mögulegt er að umfang fjármögnunarlotunnar taki breytingum. Endanleg ákvörðun um fjármögnunina mun líka ráðast af því hvenær OpenAI ákveður að fara á hlutabréfamarkað, að sögn eins heimildarmanns. Hann bætti við að fjárfestar, en ekki félagið sjálft, hefðu átt frumkvæði að viðræðunum. Sam Altman, forstjóri OpenAI, sagði um helgina að ólíklegt væri að félagið yrði skráð á markað fyrir árið 2027. Hann hefur sagt að það væri „óskynsamleg tímasetning“ að fara á markað um þessar mundir, í ljósi vaxandi áhyggna af þeirri tilvistarógn sem gervigreind kann að hafa í för með sér.