Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Boða grundvallarbreytingar í óvild heimilislækna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.7.2026 | 14:14 Boða grundvallarbreytingar í óvild heimilislækna Í umsögnum segja læknar drög ráðherra virðast annað hvort unnin af þekkingarleysi á því starfi sem unnið er á heilsugæslum eða tilraun til þess að umbylta starfi hennar til frambúðar. Samsett mynd/mbl.is/Arnþór Birkisson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Heimilislæknar hafa gagnrýnt drög að reglugerð um heilsugæslu sem kynnt voru til umsagnar í Samráðsgátt í síðustu viku harðlega sökum þess að hún virðist boða grundvallarbreytingu á hlutverki og starfsemi heilsugæslustöðva, sem munu að mati þeirra skaða heilsugæsluna og þróun hennar. Í umsögnum segja þeir drögin virðast annað hvort unnin af þekkingarleysi á því starfi sem unnið er á heilsugæslu eða tilraun til þess að umbylta starfi hennar til frambúðar, og gera alvarlegar athugasemdir við þá sýn að „þverfagleg teymi“ muni leysa langtímasambönd sjúklinga við heimilislækna af hólmi. Þá telja margir það aðfinnsluvert að leggja drögin í samráðsgátt um hásumar, enda séu með hinni nýju reglugerð fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á starfsemi heilsugæslunnar. Frétt af mbl.is Þörf á fleiri læknum Jón Steinar Jónsson, sérfræðingur í heimilislækningum og fráfarandi yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, segir í samtali við mbl.is að aðgerðirnar muni skaða heilsugæsluna og skjólstæðinga hennar og bendir á að með þessu víki Kristrún Frostadóttir algerlega frá kosningaloforðum um framtíðarhlutverk heimilislækna. Frétt af mbl.is Þörf á fleiri læknum Frétt af mbl.is Bið eftir læknatíma 27 dagar að meðaltali Jón Steinar Jónsson, sérfræðingur í heimilislækningum og fráfarandi yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu. mbl.is/Sigurður Bogi Fari gegn grundvallaratriðum heimilislækninga Jón Steinar segir stærstu annmarka draganna snúa að skráningu skjólstæðinga heilsugæslunnar á heimilislækni. „Það hefur verið þannig á Íslandi og í samanburðarlöndum að skjólstæðingar eru skráðir hjá tilteknum heimilislækni, og þetta langtímasamband sem við eigum þannig við flesta okkar skjólstæðinga er í rauninni grunnur í heimilislækningum.“ Í hinum nýju drögum er hins vegar vikið frá því orðalagi sem viðhaft er í núverandi reglugerð, um að sjúklingur skuli að jafnaði skráður hjá heimilislækni, og þess í stað skuli hann skráður hjá þverfaglegu teymi á heilsugæslustöðinni, eins og segir í 3. grein þeirra. „Með þessu er ráðherrann raunverulega að fara gegn algjöru grundvallaratriði í heimilislækningum, sem er þetta langtímasamband við sjúklinga.“ Frétt af mbl.is Heimilislæknar helmingi færri en þyrfti Afgerandi jákvæð áhrif langvarandi sambands Fleiri heimilislæknar hafa bent á það í athugasemdum að fjöldi rannsókna sýni fram á gagnsemi og mikilvægi sambands heimilislæknis og skjólstæðings. Til að mynda hafi langvarandi samband þeirra á milli afgerandi jákvæð áhrif til lækkunar dánartíðni, leiði til færri bráðainnlagna og minni notkunar vaktþjónustu. Þá bendir Jón Steinar á að forsætisráðherra hafi í aðdraganda síðustu þingkosninga ritað skoðanagrein á Vísi um mikilvægi þess að sjá þorra almennings fyrir föstum heimilislækni, enda hafi „Fastur heimilislæknir sem þekkir þig“ verið efst á blaði af fimm þjóðarmarkmiðum Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum. Frétt af mbl.is Heilbrigðismálin eru efst á blaði Varar við því að leggja niður heimahöfnina Þá gerir Jón Steinar alvarlegar athugasemdir við að Þróunarmiðstöð íslenskar heilsugæslu (ÞÍH) sé ekki höfð með í reglugerðinni og að ætlunin virðist vera að leggja hana niður, enda gegni hún mikilvægu hlutverki við kennslu og þjálfun fagaðila innan heilsugæslunnar og þróun starfseminnar. „Með því að taka Þróunarmiðstöðina út úr reglugerðinni setur ráðherra þetta mjög svo mikilvæga starf, sem tengist mönnun til framtíðar, í uppnám,“ segir hann og bætir því við að bæði þróunarstarf og nýliðun innan heilsugæslunnar muni líða stórlega fyrir það ef þessi heimahöfn verði fjarlægð. Hann segir drögin þannig jafnframt stangast á við þau markmið sem reglugerðin er rökstudd með og ekki til þess fallin að leysa meginvanda heilbrigðiskerfisins – mönnunarvandann. Ítarlegra viðtal við Jón Steinar má nálgast í Morgunblaði morgundagsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslenskt líftæknifyrirtæki verðlaunað Boða grundvallarbreytingar í óvild heimilislækna Áhugaverð skipti í NBA-deildinni Krefjast gjaldþrotaskipta á búi Jóns Einars Ná samkomulagi við Víetnam um fríverslunarsamning Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvers vegna eru vextir svona háir? „Ekki vekja athygli á þér, ekki monta þig“ Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Drengurinn fundinn heill á húfi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Íslenskt líftæknifyrirtæki verðlaunað Boða grundvallarbreytingar í óvild heimilislækna Áhugaverð skipti í NBA-deildinni Krefjast gjaldþrotaskipta á búi Jóns Einars Ná samkomulagi við Víetnam um fríverslunarsamning Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Hvers vegna eru vextir svona háir? Stytting rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Drengurinn fundinn heill á húfi Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article