Innlent | mbl | 2.7.2026 | 22:03 „Mjög líklegt“ að orða þurfi reglugerðina betur Alma segir það áfram markmiðið að allir landsmenn hafi fastan heimilislækni. mbl.is/Eyþór Árnason Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Heilbrigðisráðherra segir það misskilning hjá þeim heimilislæknum sem gert hafa alvarlegar athugasemdir við drög að reglugerð um heilsugæslu sem kynnt voru til umsagnar í Samráðsgátt í síðustu viku að drögin feli í sér grundvallarbreytingar á sambandi heimilislækna við sjúklinga sína. Í samtali við mbl.is fyrr í dag gagnrýndi heimilislæknir til fjölmargra ára drögin og sagði þau virðast boða það að „þverfagleg teymi“ muni leysa heimilislækna af hólmi, enda ekki minnst einu orði á um að einstaklingar gætu verið skráðir hjá heimilislækni í drögunum og því erfitt að lesa úr þeim að slík skráning yrði áfram möguleg. „Það stendur ekki til að gera neinar grundvallarbreytingar, og það er áfram markmiðið að allir landsmenn hafi fastan heimilislækni því að við vitum að það skilar margvíslegum ávinningi,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í samtali við mbl.is. Hún segir þó mjög líklegt að orða þurfi reglugerðina betur, en heimilislæknar hafa í umsögnum sínum bent á að reglugerðin hafi ýmsa annmarka. Frétt af mbl.is Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Hægt að skrá hjá heimilislækni eða teymi Alma segir að þær breytingar sem reglugerðin feli í sér verði þær að auk þess að geta skráð sig til eins fasts heimilislæknis verði skjólstæðingum heilsugæslunnar kleift að skrá sig á þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsmanna. Með því eru einhverjar áhyggjur heimilislækna niður kvaddar, vegna þess að ein af meginathugasemdum þeirra felst í því að í sjötta kafla draga að reglugerðinni sem snýr að skráningu á heilsugæslustöð er einungis minnst á að einstaklingur skuli að jafnaði skráður á slíkt þverfaglegt teymi, en ekkert er minnst á heimilislækna í þeirri grein. „Hér vantar auðvitað fjölda heimilislækna til að hægt sé að uppfylla það að allir séu skráðir á hagstæðan heimilislækni,“ segir Alma og bætir því við að ráðuneytið stefni að því að efla sérnám heimilislækna enn frekar. Frétt af mbl.is Aukið fé til eflingar sérnáms í heimilislækningum „En ég vil fullvissa læknana um að það er engin stefnubreyting, og þegar ég heyrði af þessum misskilningi hringdi ég í formann Félags heimilislækna til að árétta þetta,“ segir Alma. „En það getur vel verið, og er mjög líklegt, að við þurfum að orða reglugerðina betur.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sjúkrahúsin ekki tilbúin í aðra hitabylgju „Mjög líklegt“ að orða þurfi reglugerðina betur Myndskeið: Markvörðurinn skoraði frá eigin vallarhelmingi Portúgal – Króatía kl. 23, bein lýsing Björn Steinbekk stofnar fyrirtæki Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Sjúkrahúsin ekki tilbúin í aðra hitabylgju „Mjög líklegt“ að orða þurfi reglugerðina betur Myndskeið: Markvörðurinn skoraði frá eigin vallarhelmingi Portúgal – Króatía kl. 23, bein lýsing Björn Steinbekk stofnar fyrirtæki Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið