Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.7.2026 | 11:15 Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Stjörnu Sævar er hér fremstur með Malbygg-mönnum; frá vinstri eru Bergur, Magnús Már og Vilhjálmur Þór. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Bjórmenning Thule gengur í gegnum breytingar Ný útgáfa af Tuborg komin á nokkra bari Brugghúsadeginum fagnað í dag Vinsældir Guinness í hæstu hæðum Bretar með böggum hildar yfir hækkandi bjórverði » Fleiri tengdar fréttir Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hinn 12. ágúst stendur nú yfir og tekur á sig ýmsar myndir. Hvert sem litið er virðist þó Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, vera í stóru hlutverki. Nýjasta útspil hans er að framleiða sérstakan sólmyrkvabjór í samstarfi við brugghúsið Malbygg. Bjórinn kallast Ljós og er kynntur til sögunnar í dag. Magnús Már Kristinsson hjá Malbygg segir við mbl.is að Sævar hafi haft samband við forsvarsmenn brugghússins fyrir um tveimur árum með þessa hugmynd. Bergur Gunnarsson bruggari hjá Malbygg var nemandi Sævars í MR á sínum tíma svo það voru hæg heimatök að tengja menn saman. „Sævar sagði okkur að hér yrði ekki almyrkvi á sólu aftur fyrr en 2156 og datt í hug að við myndum brugga með honum bjór vegna þessa merka viðburðar. Við tókum vel í þetta en áttuðum okkur ekki alveg á stærð viðburðarins,“ segir Magnús. Fyrr á þessu ári setti Sævar sig aftur í samband við Malbygg. „Þá kom hann til okkar og hélt ótrúlega skemmtilegan fyrirlestur um almyrkva. Hann náði okkur alveg, þessi maður er fæddur fræðari!“ Frétt af mbl.is 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Magnús segir að dæmi séu um að bjórar hafi verið bruggaðir sérstaklega fyrir almyrkva. Það hafi nokkrum sinnum verið gert í Bandaríkjunum og í þeim tilvikum hafi verið um stóra og þunga stout-bjóra að ræða. Sævar Helgi og Malbygg hafi ákveðið að fara aðra leið. „Þurrhumlaður lager varð fyrir valinu. Hann hentar vel fyrir alla og er með smá Malbygg-stílbrögðum.“ Sólmyrkvagleraugu á leið til landsins Smá tíma tók að finna rétta nafnið á bjórinn. „Við vildum að það myndi minna á tilefnið án þess að vera of augljóst. Eftir að hafa farið nokkra hringi með það festum við að lokum nafnið Ljós. Viðburðurinn snýst auðvitað um ljós og bjórinn sjálfur er ljós lager.“ Þá segir Magnús að von sé á búnaði í stíl við bjórinn sem nýtist á stóra daginn í ágúst þegar tunglið mun ganga alveg fyrir sólina og skyggja á hana í nokkrar mínútur. „Við vildum einnig bjóða fólki upp á 360 gráðu lausn meðan á almyrkvanum stendur og eru því sérhönnuð sólmyrkvagleraugu á leið til landsins sem bera sömu hönnun og bjórdósin.“ Bjórnum fagnað í dag og Sævar með fyrirlestur Bjórnum verður fagnað síðdegis í dag á Malbygg Taproom í Skútuvogi 1h. „Sævar ætlar að mæta til okkar klukkan 18 og halda fyrirlestur um sólmyrkva og, ef veður leyfir, leyfa fólki að skoða sólina. Ég hafði ekki mikinn áhuga á sólmyrkvum en varð dolfallinn eftir að hafa hlustað á hann. Við erum svo spenntir fyrir þessu að við létum baka fyrir okkur sólmyrkvaköku sem boðið verður upp á. Einnig verður smakk af Ljósi í boði hússins og kipputilboð til heimilisnota.“ Frétt af mbl.is Óvænt samstarf á tíu ára afmælinu Frétt af mbl.is Afmæliskisi í veislu hjá Malbygg Tengdar fréttir Bjórmenning Thule gengur í gegnum breytingar Ný útgáfa af Tuborg komin á nokkra bari Brugghúsadeginum fagnað í dag Vinsældir Guinness í hæstu hæðum Bretar með böggum hildar yfir hækkandi bjórverði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekur við sjöunda starfinu í heimalandinu Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Ósamræmið hefur áhrif Ferris wheel returns to Reykjavík Harbor Færði góðar fréttir af Mohamed Salah Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandero áfram vestan við landið Bjargað eftir átta daga leit Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Skúraveður með hagléljum og eldingu Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Hætt við þéttingu í Grafarvogi Andlát: Björn Ólafs Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Tekur við sjöunda starfinu í heimalandinu Stjörnu-Sævar kominn í bjórinn Ósamræmið hefur áhrif Ferris wheel returns to Reykjavík Harbor Færði góðar fréttir af Mohamed Salah Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið 17 látnir eftir stærstu áras á Kænugarð frá upphafi Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Hantaveirufaraldrinum lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Hætt við þéttingu í Grafarvogi Andlát: Björn Ólafs Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar

Share this article