Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segist hafa upplifað mikla gleði yfir því að hafa fengið að upplifa sólmyrkvann með ástvinum sínum. Hann er þó feginn því að almyrkvinn sé yfirstaðinn. „Allt stress síðustu daga að brjótast út í einu og ég átti bara svolítið erfitt með að halda aftur af tárunum. Ég er búinn að verja svo miklum tíma í þetta að ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Sævar með grátstafinn í kverkunum í kvöldfréttum Sjónvarps. Innslagið úr fréttatímanum má sjá í spilaranum hér að neðan en þar má meðal annars sjá þegar Stjörnu-Sævar upplifir sólmyrkvann í faðmi fjölskyldu sinnar. Stjörnu-Sævar átti erfitt með að halda aftur af tárunum á stóru stundinni þegar almyrkvinn gekk yfir. Hann segir myrkvann sameinandi afl. „Bæði vonbrigði og ekki vonbrigði“ Mikill tími og orka hefur farið í að útvega landsmönnum sólmyrkvagleraugu og ýmis önnur tæki til að sjá sólmyrkvann betur. Hann vill ekki segja að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum. Tilfinningarnar eru þó blendnar. „Þetta eru bæði vonbrigði og ekki vonbrigði. Vonbrigðin eru þau að þið öll hérna á Íslandi hafið ekki fengið að sjá þessa dýrð sem blasir við á himni þar sem kolsvart tunglið er umvafið kórónu sólar og sólstrókum. En þetta var svo falleg stund þar sem fólk þagnaði, við vorum einhvern veginn öll sameinuð undir skugga tunglsins, undir tunglnóttinni. Og það er bara gullfallegt. Á okkar tímum er erfitt að sameina okkur en ef eitthvað sameinar okkur þá er það það sem er fyrir ofan okkur.“ Hann segist hafa upplifað mikið spennufall eftir sólmyrkvann. „Ég vonandi sofna í fyrsta skipti í viku vel eftir þetta kvöld. Ég hlakka svo bara til næstu 170 ára, þegar ég sé sólmyrkvann næst á Íslandi,“ segir Sævar.