Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, lætur ekki hugfallast þrátt fyrir að ský hafi skyggt á sólmyrkvann hér á landi í gær. Hann tilkynnti Facebookhópi í dag að hann ætlaði að njóta næsta sólmyrkva, eftir tæpt ár, á Spáni. „Jæja, hvar næst? Um hádegisbil 2. ágúst 2027 verður næsti almyrkvi á sólu á Jörðinni. Almyrkvaslóðin liggur yfir suður Spán, norður Afríku og Arabíuskaga. Ég ætla að vera syðst á Spáni, skammt frá Gíbraltar og njóta þar vonandi heiðskírs almyrkva í stórkostlegar 4m 30s.“ Vilyrði fyrir hótelherbergjum fyrir áhugasama Íslendinga Sævar segist hafa fengið vilyrði fyrir hótelherbergjum fyrir áhugasama Íslendinga en tók þó fram að ekki væri hægt að loka neinu fyrr en allt væri staðfest. Hann hvatti þó íslendinga á þessum slóðum til að hafa samband. Sævar sagði í samtali við fréttastofu í gær, þegar sólmyrkvinn var yfirstaðinn, að skyggnið hafi vekki verið vonbrigði, en blendnar tilfinningar bærðust innan með honum. „Vonbrigðin eru þau að þið öll hérna á Íslandi hafið ekki fengið að sjá þessa dýrð sem blasir við á himni þar sem kolsvart tunglið er umvafið kórónu sólar og sólstrókum. En þetta var svo falleg stund þar sem fólk þagnaði, við vorum einhvern veginn öll sameinuð undir skugga tunglsins, undir tunglnóttinni. Og það er bara gullfallegt. Á okkar tímum er erfitt að sameina okkur en ef eitthvað sameinar okkur þá er það það sem er fyrir ofan okkur.“