Þrátt fyrir að lið Túnis sé farið stigalaust heim á leið af HM í fótbolta en saga liðsins á mótinu enn að taka óvæntar beygjur. Leikmenn Túnis undirgengust reglubundið lyfjaeftirlit á mótinu og nú hefur verið greint frá því að átta leikmenn liðsins hafi fallið á prófinu. Þar greindist efnið clenbuterol greindist í sýnum leikmannanna en magnið var hins vegar lágt og undir viðmiðum sem valda sektum og bönnum. Efnið er bannað af Alþjóðalyfjastofnunninni en þekkist til að mynda í nautgriparæktun þar sem það er notað í þeim tilgangi að stækka vöðva dýranna. Þá eru einnig dæmi þess að vaxtarrækarfólk hafi notað efnið í þeim tilgangi að hraða efnaskiptum og byggja upp vöðva. Athygli beindist að liðinu í upphafi mótsins þegar þjálfarinn, Sabri Lamouchi, var látinn taka pokann sinn eftir fyrsta leik Túnis á mótinu. Frakkinn Hervé Renard tók við út mótið en ekki skánaði gengið eftir það. Liðið fór heim án stiga eftir riðlakeppninna með -10 í markatölu.