Innlent | mbl | 3.7.2026 | 20:21 Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson. Ljósmynd/Aðsend Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson ætla að synda frá Vestmannaeyjum að Suðurströnd Íslands í styrktarsundi til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk. Þetta segir Jóhann Guðmundsson í samtali við mbl.is. Búið er að setja upp vefsíðu þar sem hægt er að heita á þá. „Við reiknum með að synda um 12 til 13 kílómetra og að ferðin taki 6 til 8 klukkutíma. Við gerum ráð fyrir að synda á sunnudaginn 9. júlí þar sem spáð er því að straumarnir verði okkur í hag og veðrið líka. En með þetta íslenska veður þá veit maður aldrei,“ segir Jóhann. Aðeins sex sinnum tekist áður Þeir félagar eru þríþrautarmenn og eru báðir búnir að vera að undirbúa sig fyrir Járnkarl og því í fínu standi fyrir sundið. „Við erum svipaðir í sundinu. Það er kannski meiri samvinna heldur en samkeppni á milli okkar Arons, en það kemur bara í ljós hver verður á undan.“ Aðeins sex sinnum hefur tekist að synda þessa leið. Sigurgeir Svanbergsson varð síðastur til að ljúka sundinu árið 2022 og verður hann í fylgdarliði þeirra félaga. Reiknað með að straumarnir verði þeim í hag og veðrið líka. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Við erum með hvorn bátinn sem fylgir okkur. Í þessum bátum eru teymi sem við erum búin að skipa. Teymin þekkja vel inn á planið, næringuna og öryggisatriðin og munu taka stöðuna á okkur reglulega.“ Það er mismunandi hvað fólk borðar í svona leiðangri að sögn Jóhanns og fer það algerlega eftir fólki. „Ég verð með kolvetnaskvísur, rétt eins og fólk notar í hlaupum og hjólreiðum. Þær fara vel í mig. Svo myndu aðrir kannski borða bara hlaupabangsa og drekka kóka kóla,“ segir hann. Ekkert annað góðgerðastarf kom til greina Þeir eru búnir að fá styrk frá Sportís til að setja af stað peysu- og bolaframleiðslu til styrktar dóttur Bríetar. „Þökk sé þeim erum við komin með ágætis upphæð en markmiðið er að safna yfir einni milljón króna,“ segir Jóhann. Jóhann og Bríet höfðu þekkjast í nokkur ár og kom ekkert annað góðgerðastarf til greina. „Hún hafði mikil áhrif á líf margra og maður heyrir alltaf sömu frásagnirnar um hana, að þar sem hún kom þá birti til. Það er virkilega sorglegt hvernig fór og maður fann hvað þetta skók fólk mikið. Ég fann það á mér að ef ég færi í eitthvað góðgerðastarf þá yrði það fyrir stelpuna hennar Bríetar,“ segir Jóhann. Hægt verður að fylgjast með sundinu á samfélagsmiðlinum Instagram: J.gudmunds og Aronthorleifss. Einnig er hægt að heita á sundið á https://atalia.is/ og verður allur ágóði látinn renna til Atalíu Arkar. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Greiðsluvandræði hjá Landsbankanum Öflugur á HM og skrifar undir hjá Bayern „Það eina sem mér líkar ekki við er veðrið“ Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Verður áfram hjá Sunderland Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Greiðsluvandræði hjá Landsbankanum Öflugur á HM og skrifar undir hjá Bayern „Það eina sem mér líkar ekki við er veðrið“ Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Verður áfram hjá Sunderland Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Ellefta langreyðurin veidd Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Hætt við þéttingu í Grafarvogi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar