Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Staðráðnir í að reyna aftur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.7.2026 | 11:02 Staðráðnir í að reyna aftur Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson. Ljósmynd/Aðsend Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson, sem stöðvaðir voru um 1.500 metrum frá landi á sundi sínu frá Vestmannaeyjum að Landeyjahöfn um helgina vegna veðurskilyrða, segjast brattir og staðráðnir í að reyna aftur við þrekvirkið seinna meir. „Við stóðum okkur mjög vel, allt teymið í kringum okkur stóð sig rosalega vel en það sem varð okkur að falli er bara þessi óútreiknanlega íslenska veðrátta,“ segir Jóhann í samtali við mbl.is. Hann segist hafa fulla trú á því að þeir hefðu klárað sundið hefði veðrið ekki versnað eins snemma og það gerði og er bjartsýnn fyrir næstu tilraun, hún verði þó ekki á næstunni. Þá hafi þeir nægan tíma til að æfa sig og komi að sundinu ekki aðeins í betra standi heldur reynslunni ríkari. Frétt af mbl.is Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hafa safnað rúmri milljón Sundið var synt til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk. Þegar þessi frétt er skrifuð er búið að safna 1.046.500 krónum. Hægt er að heita á sundkappana hér . Mikil ánægja fylgdi því að rjúfa milljón króna markið að sögn Jóhanns og var það mikilvægur sigur, enda söfnunin fyrir Atalíu undirstöðuatriði alls verkefnisins. „Svona er þetta bara“ Hann segir bæði þá Aron og teymið hafa verið komin út í „aðstæður sem við gátum lítið gert okkur í hugarlund hverjar yrðu“. „En það stóðu sig allir ótrúlega vel og teymið á allar þakkir skilið fyrir að hafa tæklað hlutina svona rosalega vel.“ Það hafi verið stór og erfið ákvörðun að stöðva sundið „sérstaklega þegar er svona stutt í land“. Jóhann segir veðrið sem þeir hafi lent í hafa verið spáð seinna um kvöldið en eins og við þekkjum flestöll þá hringir íslenska veðrið ekki alltaf á undan sér. „Það er bara hluti af því að vera Íslendingur og búa á þessu frábæra landi okkar, svona er þetta bara og við tökum því.“ Sundkapparnir voru stöðvaðir eftir rúmlega níu kílómetra sund og segir Jóhann þá félagana vera smá ryðgaða en þó kampakáta. Þeir hafi farið út að borða í gær og líðanin sé ekkert öðruvísi en við mátti búast. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fyrstu myndirnar af Mette-Marit eftir lungnaígræðsluna „Helgin mjög krefjandi“ UEFA gagnrýnir harðlega ákvörðun FIFA Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ánægja með afturköllun Krefst uppsagnar leigusamnings Ekki verið rannsakað áður hér á landi Var á göngu með syni sínum Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Vilja ný tilboð í tröppurnar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun „Allt járn var orðið ryðgað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Fyrstu myndirnar af Mette-Marit eftir lungnaígræðsluna „Helgin mjög krefjandi“ UEFA gagnrýnir harðlega ákvörðun FIFA Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Þyrlan kölluð til vegna rútuslyss í Suðursveit Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Ánægja með afturköllun Viðbragðsáætlun virkjuð Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Vilja ný tilboð í tröppurnar Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun „Allt járn var orðið ryðgað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum

Share this article