Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2026 | 21:45 Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Lárus Guðmundsson. Ljósmynd/Jón Halldór Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Undanfarið hefur talsvert verið fjallað um ofurfólk sem skellti sér í Laugavegshlaupið eða Rift-reiðhjólakeppnina fyrr í mánuðinum. Ekki er það neitt áhlaupaverk enda er Laugavegshlaupið 55 kílómetrar og lengsta vegalendin í Rift er 330 kílómetrar. Sunnlendingurinn Lárus Guðmundsson tók hins vegar þátt í báðum keppnunum þótt ótrúlega kunni að hljóma og finna má gögn því til sönnunar að hann lauk báðum keppnum. Einungis sex dagar liðu frá því hann kom í mark í hlaupinu og þar til hann var farinn af stað á hjólinu en hér er vert að nefna að Lárus er kominn nokkuð á sextugsaldurinn. „Í hlaupinu var ég meðvitaður um að ég gæti ekki klárað allar orkubirgðirnar þar sem ég ætti hina keppnina eftir. Það var allavega hugsunin. Ég reyndi að ná þokkalegum svefni til að jafna mig en ég fór aðeins inn í Veiðivötn eftir hlaupið og þetta var því ekki fullkomin hvíld hjá mér á milli keppna. En ég var merkilega vel á mig kominn eftir hlaupið,“ segir Lárus þegar hann er inntur eftir því hvernig hann hafi endurheimt kraft á milli keppna. Lárus var tæpar 7 klukkustundir á hlaupum og um 21 klukkustund á reiðhjólinu. Var líkaminn ekkert farinn að mótmæla þegar leið á Rift? „Nei, það var nefnilega magnað. Ég reyndi að gæta þess að borða svo gott sem stanslaust til að missa ekki orku. Ég fékk mér tvo skammta af orkugeli á klukkutíma fyrir utan það sem ég borðaði á stoppistöðvum en ég get viðurkennt að mig langar hvorki í gel né pasta núna.“ Lárus kemur í mark á laugardeginum. Ljósmynd/Bjarni Baldursson Ætlaði í aðra hvora keppnina Lárus neitar því ekki að hafa verið stressaður yfir því að fara í báðar keppnirnar og upp úr krafsinu kemur að hann átti ekki von á því í sumarbyrjun. „Ég hafði stressað mig á þessu í töluverðan tíma enda erfiðar keppnir hvor um sig og ekki sjálfgefið að ljúka keppni. Það gerðist eiginlega óvart að ég endaði í báðum keppnum því ég ætlaði bara í aðra hvora keppnina. Þegar skráningin fór fram var ég á biðlista inn í báðar keppnirnar og því var útlit fyrir að ég færi í hvoruga. Síðar gerðist það með skömmu millibili að ég komst inn í báðar keppnirnar,“ útskýrir Lárus en ekki verður sagt að reiðhjólakeppnin hafi verið honum auðveld því hann varð fyrir óláni sem reyndi á þolrifin. „Hjólið festist í fjórða gír þegar gírskiptingin bilaði. Ég þurfti að taka skiptinn af og setja keðjuna á eins og á gömlu hjólunum. Ég var fastur í sama gír síðustu 130 kílómetrana,“ segir Lárus. En hvarflaði ekki að honum að láta staðar numið við þessar aðstæður? „Já, í eina mínútu en mér þótti leiðinleg tilhugsun að fara í báða atburðina en ljúka þeim ekki því ég hafði orðið var við að fólki þótti merkilegt að ég myndi taka þátt í báðum keppnum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndir: Draumkennt sumarkjóla- og freyðivínshlaup Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Var í afneitun vegna versnandi heilsu Húsavík styrkir rafíþróttir Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandero siglir utan í skip Hvals Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Bandero siglir utan í skip Hvals Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Beint: Megas jarðsunginn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Myndir: Draumkennt sumarkjóla- og freyðivínshlaup Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Var í afneitun vegna versnandi heilsu Húsavík styrkir rafíþróttir Umræðan Áður en lagt er af stað Við vitum nú þegar meira en nóg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Rændu heilum gámi af kampavíni Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ Gunnar Þórðarson er látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Bandero siglir utan í skip Hvals Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Beint: Megas jarðsunginn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Gunnar Þórðarson er látinn