Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 7:00 Fékkstu útborgað í vikunni? Sigþrúður Ármann Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Mánaðamót eru sérstakur tími í rekstri fyrirtækja. Fyrir flesta launþega eru þau tíminn sem laun berast inn á bankareikninginn. Fyrir þúsundir eigenda og stjórnenda einkafyrirtækja eru þau hins vegar prófraun. Tryggja þarf að fjármunirnir séu raunverulega til staðar og hafa margir eflaust upplifað andvökunætur af þeim sökum. Eigendur vita að starfsfólkið, sem lagt hefur hart að sér, treystir því að launin berist á réttum tíma. Auk launa þarf að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld, tryggingagjald, virðisaukaskatt, rafmagn, hita, fasteignagjöld, afborganir lána og fjölmargar aðrar skuldbindingar. Stundum þurfa eigendur þá að fresta eigin launum, leggja eigið fé inn í reksturinn eða gangast undir persónulegar ábyrgðir og veðsetja eigur sínar til að halda fyrirtækinu gangandi. Laun vaxa ekki á trjánum Til að geta greitt laun þarf fyrirtæki fyrst að skapa verðmæti. Það þarf að þróa vöru eða þjónustu sem fólk vill kaupa og afla tekna sem standa undir rekstrinum. Ef tekjurnar duga ekki þarf að grípa til aðgerða: hagræða, endurskipuleggja og taka erfiðar ákvarðanir. Þetta er veruleiki eigenda og stjórnenda fyrirtækja um allt land. Á bak við hverja launagreiðslu stendur einhver sem ber ábyrgð á því að fjármunirnir séu til staðar. Sú ábyrgð er sjaldnast sýnileg. Verðmætasköpun er grunnur að velferð Sama gildir um samfélagið í heild. Vel rekin fyrirtæki gera samfélaginu kleift að fjármagna mikilvæga starfsemi eins og rekstur sjúkrahúsa, skóla og löggæslu. Öflug fyrirtæki og öflug opinber þjónusta eru því ekki andstæður. Verðmætasköpun og velferð eru samofin. Í opinberri umræðu gleymist þetta stundum þegar rætt er um velgengni og hagnað fyrirtækja á neikvæðan hátt. Fyrirtæki greiða skatta af hagnaði og hagnaður er forsenda þess að fyrirtæki geti fjárfest, þróast, staðist áföll og skapað ný störf. Án hagnaðar verður minni fjárfesting, minni nýsköpun og að lokum minni verðmætasköpun. Verðmæti skapa skatttekjur Það er fagnaðarefni þegar íslensk fyrirtæki ná árangri. Það er ekki aðeins jákvætt fyrir eigendur þeirra heldur fyrir starfsfólkið og samfélagið í heild. Til að halda uppi öflugu menntakerfi, heilbrigðiskerfi og velferðarkerfi þarf samfélagið stöðugt að skapa ný verðmæti. Markmið stjórnvalda ætti ekki að vera fyrst og fremst að hækka skatta og gjöld heldur að skapa umhverfi þar sem fleiri fá hugrekki til að stofna fyrirtæki, fá með sér fjárfesta, taka áhættu, skapa störf og búa til verðmæti. Þannig verður skattstofninn breiðari og samfélagið sterkara. Áður en samfélagið getur ráðstafað verðmætum verður einhver að hafa skapað þau – fyrir hver mánaðamót. Sigþrúður Ármann fyrirtækjaeigandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir kommúnismann á uppleið Finnland hefur ekki forspárgildi Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Pistill: Lýðræðiskennsla Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Segir kommúnismann á uppleið Finnland hefur ekki forspárgildi Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Vill sjá eftirmál af leka saksóknarans Pistill: Lýðræðiskennsla Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Hvað kostar að leigja sundskýlu? „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita