Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Í upphafi skyldi endinn skoða

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 8:00 Í upphafi skyldi endinn skoða Baldur Guðlaugsson Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Deilur um það hvort hefja skuli nýjar aðildarviðræður við Evrópusambandið hafa fram til þessa ekki síst snúist um það hvort líkur séu á að Ísland muni geta samið um fullnægjandi sérlausnir á sviði sjávarútvegs-, orku- og landbúnaðarmála. Forystumenn Samfylkingar og Viðreisnar segjast sannfærðir um að það sé hægt og leggja jafnframt áherslu á að þjóðin taki enga áhættu með því að ganga til aðildarviðræðna þar sem hún muni einfaldlega geta hafnað Evrópusambandsaðild í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu ef viðunandi samningsniðurstaða næst ekki. Öll rök mæli þar af leiðandi með því að „kíkja í pakkann“. Þetta viðhorf er af ýmsum ástæðum einkar varhugavert. Til að mynda er hætt við að þeir talsmenn Evrópusambandsaðildar sem gengið hafa lengst í staðhæfingum um að líkur séu á að Evrópusambandið sé tilbúið að samþykkja sérlausnir Íslandi til handa muni vilja sýna að þeir hafi staðið við stóru orðin og muni því hafa tilhneigingu til þess að túlka hvers kyns tilhliðranir af hálfu Evrópusambandsins sem fullnægjandi samningsniðurstöðu fyrir Ísland. Þá er ekki ólíklegt að sömu tilhneigingar myndi gæta hjá forystumönnum ríkisstjórnarinnar ef í ljós kæmi í lok samningaferlisins að því yrði ekki vel tekið af hálfu Evrópusambandsins, jafnvel þannig að áhrif hefði á framtíð EES-samningsins, hygðust forystumenn stjórnarflokkanna beita sér fyrir því að frágenginn aðildarsamningur yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Greinarhöfundur telur þó að það varhugaverðasta við „að kíkja í pakkann“-málflutninginn sé að með honum er dregin upp sú villandi mynd að spurningin um það hvort Ísland eigi að gerast aðildarríki að Evrópusambandinu snúist nánast eingöngu um það hvort „ásættanleg niðurstaða“ fáist í samningum um áframhaldandi forræði þjóðarinnar í sjávarútvegs-, orku- og landbúnaðarmálum. Ef það takist sé ekkert því til fyrirstöðu að Ísland gerist aðildarríki. Með málflutningi „já-sjá“-manna er á vissan hátt gert út á það að Íslendingar séu í eðli sínu keppnismenn sem muni lita á aðildarviðræðurnar sem eins konar íþróttakappleik. Ísland geti tryggt sér fullan sigur með viðunandi niðurstöðu í samningum um framangreinda málaflokka, sem þjóðin vel að merkja fer nú þegar með fullt forræði yfir. Að unnum slíkum sigri muni kjósendur almennt ekki sjá þörf á að velta mikið fyrir sér hvaða aðrar afleiðingar aðild hefði í för með sér. Leiðin til Brussel verði þá bæði bein og greið. Ekki skal hér dregið í efa að talsmenn aðildarviðræðna tali af heilum hug þegar þeir segja að þeir muni ekki mæla með aðild að Evrópusambandinu þegar þar að kemur nema það takist að tryggja fullnægjandi sérlausnir fyrir Ísland. En forystumenn stjórnarflokkanna eru keppnismenn og því er hætt við að þeir muni, eins og áður var nefnt, hneigjast til að oftúlka árangur Íslands í aðildarviðræðunum. Það sem gjarnan gleymist á hinn bóginn í yfirstandandi umræðum er að spurningin um það hvort það þjóni hagsmunum íslensku þjóðarinnar að ríkið gerist aðili að ESB hvílir ekki einvörðungu á niðurstöðum aðildarviðræðna sem slíkum. Aðildarsamningar sem ríki gera við Evrópusambandið eru ekki uppsegjanlegir kjarasamningar með rauð strik og fela ekki í sér neins konar lífskjaratryggingu fyrir íbúa viðkomandi þjóða. Óumdeilt er að mörg af ríkjum Evrópusambandsins búa nú við stöðnun í efnahagsmálum, seinvirka og kæfandi stjórnsýslu, versnandi lífskjör, óstöðugleika á sviði stjórnmála og minnkandi trú almennings á framtíðina. Á hinn bóginn búa Íslendingar nú við einhver bestu lífskjör í heimi. Óskorað forræði þjóðarinnar yfir sínum auðlindum og þátttaka í víðtæku alþjóðlegu samstarfi á sviði viðskipta- og öryggismála, þ.á m. við Evrópusambandið, hefur lagt grunn að því að þjóðinni hefur tekist að virkja það hugvit, þrautseigju, snerpu og aðlögunarhæfni sem henni er í blóð borin til að sækja fram. Þjóðin hefur verið sinn eigin gæfusmiður. Kjósendur gerðu því réttast í að spyrja sig áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, hvort líklegt sé að þjóðinni muni farnast betur en verið hefur með þeirri skertu „hreyfigetu“ hennar sem leiða mundi af aðild að Evrópusambandinu. Svarið við því er ekki að finna í pakkanum sem sumir vilja nú ólmir fá að kíkja í. Baldur Guðlaugsson lögfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allt að 17 stiga hiti Pistill: Vegferðin gengur víst vel Aðsend grein: Í upphafi skyldi endinn skoða Gamla ljósmyndin: 20 ár í meistaraflokki Handtekinn fyrir líkamsárás Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Hvað kostar að leigja sundskýlu? Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Finnland hefur ekki forspárgildi Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Allt að 17 stiga hiti Pistill: Vegferðin gengur víst vel Aðsend grein: Í upphafi skyldi endinn skoða Gamla ljósmyndin: 20 ár í meistaraflokki Handtekinn fyrir líkamsárás Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Bjargað eftir átta daga leit Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Hvað kostar að leigja sundskýlu? Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Finnland hefur ekki forspárgildi Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita

Share this article