Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein> Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.9.2026 | 5:30 | Uppfært 8:29 Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Hjörtur J. Guðmundsson mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Fyrir viku sendi ég fyrirspurn á upplýsingaþjónustu Evrópusambandsins þar sem ég innti hana eftir því hvort hún gæti „staðfest að samkomulag hafi verið til staðar á milli Íslands og sambandsins, þegar umsóknarferli landsins var í gangi 2009-2013, um að engin aðlögun að regluverki þess og stofnunum þyrfti að eiga sér stað fyrr en eftir að samið hefði verið um aðildarsamning og hann samþykktur“. Mér barst loks svar snemma í gærmorgun, klukkan rúmlega hálfníu að belgískum tíma. Spurningunni var ekki svarað beint en staðfest að framganga viðræðnanna hefði verið háð aðlögun. Með öðrum orðum er efnislega ljóst á svari Evrópusambandsins að ekkert slíkt samkomulag hafi verið gert enda hefði þá alls engin slík aðlögun þurft að eiga sér stað. Fram kemur í svarinu að fyrirspurninni hefði verið svarað í samráði við stækkunarráðuneyti sambandsins. Það er að segja ráðuneyti Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, sem sagði aðspurð 22. ágúst í viðtali við Sýn að engar lagabreytingar þyrftu að eiga sér stað hér á landi fyrr en eftir samþykkt samnings. Þau ummæli samræmast hins vegar hvorki svarinu né öðrum gögnum sambandsins í þessum efnum. Kröfur um laga- og stofnanabreytingar „Með fyrirvara um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst væri Íslandi ekki almennt lagalega skylt að innleiða regluverk Evrópusambandsins, breyta stjórnarskrá sinni eða framselja fullveldi meðan á aðildarviðræðum stæði. Viðræður eru undirbúningsfasi án bindandi skuldbindinga. Hins vegar væri framgangur viðræðnanna háður því að viðmið væru uppfyllt. Þau gætu falið í sér kröfur um að Ísland kæmi á tilteknum löggjafar- og stofnanabreytingum áður en hægt væri að loka einstökum viðræðuköflum, þar á meðal að sýna fram á árangursríka innleiðingu þar sem þess gerðist þörf.“ Svo segir í svari Evrópusambandsins og áfram: „Fullar aðildarskyldur, þar á meðal flutningur réttinda og skyldna samkvæmt sáttmálum Evrópusambandsins, myndu aðeins taka gildi þegar aðildarsamningurinn hefði verið fullgiltur sem venjulega krefst samþykkis í þjóðaratkvæðagreiðslu og samþykkis þingsins. Ísland gæti einnig kosið að innleiða ákveðna þætti regluverks sambandsins fyrir aðild til þess að greiða fyrir viðræðunum, uppfylla samningsviðmið og undirbúa mögulega framtíðaraðild.“ Deginum ljósara er þannig, sem fyrr segir, að þetta er alls ekki í samræmi við orð Kos í fréttum Sýnar. Svarið var tilbúið fyrir þjóðaratkvæðið Fram kemur á vefsíðu upplýsingaþjónustu Evrópusambandsins að almennt sé fyrirspurnum svarað innan þriggja virkra daga. Skömmu áður hafði ég sent inn aðra fyrirspurn hliðstæðs efnis sem svarað var innan þess tímaramma. Ljóst er af svarinu að það lá fyrir í síðustu viku, áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram á laugardaginn, enda talað um fyrirvara um niðurstöðu þess sem lá sem sagt ekki fyrir. Við bætist sú staðreynd að svarið skilaði sér snemma í morgun, skömmu eftir opnun skrifstofunnar. Ljóst má þannig vera að svarið hafi með vilja ekki verið sent fyrr en eftir að þjóðaratkvæðið hafði farið fram. Frá pólitískum sjónarhóli er skiljanlegt að ekki hafi verið vilji til þess af hálfu Evrópusambandsins að senda mér svarið fyrir en við Íslendingar hefðum greitt atkvæði í þjóðaratkvæðinu enda sem fyrr segir þvert á ummæli Kos í viðtali Sýnar. Með öðrum orðum má ljóst vera að markmiðið með svörum stækkunarráðherra Evrópusambandsins í fréttinni hafi verið að afvegaleiða íslenzka kjósendur. Skömmu áður hafði fréttavefurinn Euractiv greint frá því að háttsettir embættismenn sambandsins væru að leita leiða til að aðstoða já-hliðina í kosningabaráttunni. Skoða verður svör Kos í viðtalinu í því ljósi. Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Pólitík Það er skiljanlegt að ekki hafi verið vilji af hálfu ESB til að senda svarið fyrr en eftir atkvæðagreiðsluna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Vorum kaldir bæði í sókn og vörn“ Tólf drepnir í árásum Rússa á Kænugarð Strandveiðisjómenn brosa hringinn Finnst ég eiga meira inni á Ítalíu Sakfelldur fyrir morðið á Tupac 30 árum síðar Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mannskæðustu bílslys aldarinnar Hvetur til varanlegrar lækkunar Á annan tug starfsmanna sagt upp Pútín óttast snöruna Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Vill ekki draga umsóknina til baka „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mun krefja fjármálaráðherra svara Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli Nýjast á mbl.is » „Vorum kaldir bæði í sókn og vörn“ Tólf drepnir í árásum Rússa á Kænugarð Strandveiðisjómenn brosa hringinn Finnst ég eiga meira inni á Ítalíu Sakfelldur fyrir morðið á Tupac 30 árum síðar Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skora á atvinnurekendur og stjórnvöld Á annan tug starfsmanna sagt upp Pútín óttast snöruna Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Vill ekki draga umsóknina til baka „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mun krefja fjármálaráðherra svara Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli

Share this article