Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Læknir sem smitaðist af ebólu á batavegi Hugrún Hannesdóttir Diego Læknir sem greindist með ebólu í Frakklandi í júní er búinn að jafna sig og hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi, segir heilbrigðisráðherra Frakklands. Þetta var fyrsta ebólusmitið í Frakklandi í tólf ár. Hann greindist eftir að hafa verið í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, þar sem skæður ebólufaraldur hefur geisað að undanförnu. Rúmlega 1.400 hafa smitast frá 15. maí og nærri 440 látið lífið. Fyrir 28 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti ÍBV heldur áfram góðu gengi - ekki tapað í 6 leiki Jóhann Páll Ástvaldsson Eyjamenn eru á flugi í deildinni. Mummi Lú ÍBV heldur áfram góðu gengi sínu í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið vann Valsmenn í Eyjum rétt í þessu, 1-0. Þetta var fyrsti leikur Vals frá því að Hermann Hreiðarsson var látinn fara og því fyrsti leikur Chris Brazell einn með liðið. Alex Freyr Hilmarsson kom Eyjamönnum yfir á 58. mínútu eftir fyrirgjöf Bjarka Bjarnar Gunnarssonar. Á 65. mínútu fékk Hólmar Örn Eyjólfsson svo rautt spjald eftir átök við Alex Frey í teignum er Valsmenn áttu innkast. ÍBV tapaði gegn Víkingum 17. maí og hefur síðan þá unnið fjóra og gert tvö jafntefli í síðustu sex leikjum. Eyjamenn eru nú 7. sæti með 15 stig. Valur er sem fyrr í 5. sæti með 19 stig. Fyrir 57 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þriðji Willumssonurinn til að skora fyrir Breiðablik Breiðablik vann 1-2 sigur gegn ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Hinn 17 ára gamli Þór Andersen Willumsson skoraði sigurmarkið en hann er þriðji sonur Willums Þórs Willumssonar til að skora fyrir Breiðablik. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Fjórir handteknir á Akureyri vegna alvarlegrar líkamsárásar Fjórir menn voru handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar á Akureyri í gærkvöld. Þeir voru látnir lausir að skýrslutöku lokinni í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla biður fólk um að aka varlega – Árekstrar víða um land Árekstrar hafa verið í nokkrum landshlutum í dag. Lögregla segir að heilt yfir hafi umferð gengið vel en þó gætir talsverðra tafa á Norðurlandi vestra vegna slyss. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Náði fugli í fyrsta golfhringnum Ung kona frá Þorlákshöfn náði fugli á sínum fyrsta golfhring í gær. Það var þó ekki sams konar fugl og flestir kylfingar sækjast eftir. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Beint af æfingasvæðinu - Marokkó kemst yfir 16-liða úrslit HM karla í fótbolta hefjast í dag með tveimur leikjum. Kanada og Marokkó mætast í leik sem hefst klukkan 17:00 og Paragvæ og Frakkar mætast klukkan 21:00. Marokkó leiðir 1-0 gegn Kanada í byrjun seinni hálfleiks. Marokkó fóru alla leið í undanúrslit HM 2022 en Kanadamenn hafa aldrei komist í 16-liða úrslit áður. Hér fylgjumst við með leikjum dagsins í lifandi leikdagsvakt. Við birtum helstu atvik. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Grunaður um að hafa fleygt barni í krókódílagerði Þriggja ára drengur hefur undirgengist fimm aðgerðir vegna alvarlegra meiðsla sem hann hlaut eftir að hafa fallið í krókódílagerði. Lögreglu grunar að maður hafi fleygt honum í gerðið. Hann hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Telur tjón vegna innbrotsins nema 10 milljónum Forstjóri Stjörnugríss segir stórtjón hafa hlotist af þegar brotist var inn á svínabú fyrirtækisins í maí. Enginn hefur enn verið kallaður í skýrslutöku vegna innbrotsins þar og í Reykjabúið í Mosfellsbæ. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Gæti þurft annars stigs hreinsun á skólpi Tilraunir Akureyrarbæjar til þess að fá innri Eyjafjörð metinn sem síður viðkvæmt svæði gekk ekki eftir. Rannsóknir á sjávarbotni sýna að hann er mjög viðkvæmur. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Þúsundir mótmælenda reyndu að stöðva landsfund AfD Tuttugu þúsund mótmælendur hafa komið saman í borginni Erfurt í Þýskalandi í morgun og gert tilraun til þess að koma í veg fyrir landsfund stjórnmálaflokksins Alternative fur Deutchland. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tæknileg vandræði tengd nýju landamærakerfi ekki þau sömu hér og víða í Evrópu Yfirlögregluþjónn segir að ekki hafi komið upp tæknileg vandræði í tengslum við Entry Exit-landamærakerfið líkt og í öðrum Evrópulöndum. Margra klukkutíma langar raðir hafa myndast á flugvöllum víða í Evrópu yfir sumartímann. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Dæmdur skattsvikari handtekinn vegna Straumsvíkurmálsins Einn Íslendinganna sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stórfellds kókaínsmygls fyrir tæpum tveimur vikum hefur verið dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Tveir tveggja bíla árekstrar og veikur maður sóttur á Fimmvörðuháls Veikindi á Fimmvörðuhálsi, árekstrar og leit að týndum manni eru meðal verkefna Lögreglunnar á Suðurlandi síðan í nótt. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Drónaárásir á olíuinnviði við Sankti Pétursborg Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á olíuinnviði við Sankti Pétursborg. Tugir dróna voru skotnir niður og lenti einn í Peterhof, sögufrægum stað utan við borgina. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég vissi að ef Siggi staðfesti þetta færi ég að hágráta eða myndi urlast af reiði“ Ótrúlegar ákvarðanir tryggðu Þórbergi Erni Hlynssyni titilinn á Norðurlandameistaramóti í ólympískum lyftingum. Þá hafði liðið yfir hann í Albaníu skömmu fyrr. Sigurður Darri Rafnsson þjálfari hans segir feril sinn hafa verið í húfi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kýldi lögreglumann í hópslagsmálum í miðborginni Þrír einstaklingar voru handteknir í tengslum við slagsmál og líkamsárásir í Reykjavík í nótt. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: 16-liða úrslitin byrja 16-liða úrslit HM karla í fótbolta hefjast í dag. Næstu fjóra daga eru tveir leikir á dag þar til átta lið standa eftir. Kanada og Marokkó mætast klukkan fimm og klukkan níu er komið að viðureign Paragvæ og Frakklands. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Ríkissjóður Íslands fær AA- í einkunn Scope Ratings Scope Ratings metur lánshæfi Íslands í fyrsta sinn. Fyrirtækið telur helstu styrkleika meðal annars vera háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði og lækkandi skuldir hins opinbera en að miklar sveiflur séu í helstu hagstærðum, líkt og verðbólgu. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing eystra Stuð og stemning hjá VISS á Hvolsvelli Það var mikið stuð og stemning hjá VISS á Hvolsvelli, sem er vinnu- og hæfingarstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu, síðasta daginn fyrir sumarfrí. Boðið var upp á grillveislu, söng og skemmtiatriði þar sem allir skemmtu sér vel. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Taldir hafa ráðist á blaðamann fyrir hönd íranska ríkisins Tveir menn réðust á íransk-breskan blaðamann með hnífi við heimili hans 2024. Dómari segir ljóst að mennirnir hafi framið ódæðið fyrir hönd íranska ríkisins. 4. júlí 2026 kl. 8:09ERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Telur NATO lifa af Sérfræðingur hjá íhaldssamri hugveitu í Washington telur NATO lifa af stormasöm ár og forsetatíð Donalds Trumps. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að rækta sambandið vestur yfir haf með áherslu á embættismenn en ekki endilega æðstu leiðtoga. 4. júlí 2026 kl. 7:54INNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjart fyrir sunnan Von er á blíðviðri á sunnanverðu landinu í dag en stöku skúrum á Norðurlandi. 4. júlí 2026 kl. 6:43ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Segir þjóðinni stafa ógn af kommúnisma Bandaríkjaforseti sagði í ræðu við Rushmore-fjall að kommúnismi hefði verið endurvakinn í Bandaríkjunum og af honum stafaði mikil ógn. Mikil hátíðarhöld eru ráðgerð í dag en búið er að aflýsa skrúðgöngu í Washington vegna hitabylgju. 4. júlí 2026 kl. 4:53ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Kólumbía – Gana Kólumbía vann Gana 1-0 í síðasta leiknum í 32 liða úrslitum í Kansas í Bandaríkjunum í nótt. 4. júlí 2026 kl. 4:42ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Líbanar byrjaðir að snúa aftur heim Yfir milljón Líbana þurfti að flýja heimili sín vegna stríðsátaka milli Ísraelshers og Hezbollah. Um 640.000 þeirra hafa nú snúið heim. Ekki geta þó allir farið aftur til sinna heima því tjón og eyðilegging er víða mikil. 4. júlí 2026 kl. 3:58ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kólumbíumenn komnir í 16 liða úrslit Kólumbía vann Gana 1-0 í síðasta leiknum í 32 liða úrslitum í Kansas í Bandaríkjunum í nótt. 4. júlí 2026 kl. 3:23ERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Gróðureldar breiðast hratt út í Portúgal og á Spáni Yfirvöld í Portúgal óska enn eftir liðsauka til að berjast við mikla gróðurelda sem hafa geisað í norðurhluta landsins síðan á miðvikudag. Þá kviknuðu gróðureldar nærri Costa Brava-ströndinni á Spáni í gær. 4. júlí 2026 kl. 2:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Argentína – Grænhöfðaeyjar Argentína vann Grænhöfðaeyjar í nótt og lokatölur í æsispennandi leik voru 3-2. 4. júlí 2026 kl. 1:34ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Golíat vann Davíð – naumlega þó Argentína vann Grænhöfðaeyjar í nótt og lokatölur leiksins voru 3-2. Lið Grænhöfðaeyja gerði harða atlögu að Argentínumönnum í æsispennandi leik liðanna. 4. júlí 2026 kl. 0:44MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist T&T eru nýgift! Poppstjarnan Taylor Swift og NFL-leikmaðurinn Travis Kelce giftu sig í New York í kvöld. Fjöldi heimsþekktra gesta var við brúðkaupið í Madison Square Garden-höllinni og mikill fjöldi aðdáenda safnaðist saman fyrir utan. 3. júlí 2026 kl. 22:22ERLENDAR FRÉTTIR Íran Vikulöng útför Khameinis hafin Vikulöng útför Alis Khameinis, æðstaklerks Írans hófst í dag. Búist er við að milljónir manna sæki athafnir víðs vegar um landið. 3. júlí 2026 kl. 21:48INNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Þúsundir gesta í fótboltaveislu á Akureyri Akureyri iðar af lífi þessa dagana þar sem árleg knattspyrnuveisla bæjarins stendur sem hæst. Þúsundir sækja Akureyinga heim og gleðin ræður ríkjum innan vallar sem utan. 3. júlí 2026 kl. 21:28INNLEND