Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Baðstemning á höfninni

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 5.7.2026 | 18:15 Baðstemning á höfninni Tinna Rún, Óli Rafn, Elena Dís og Gauti fengu þá hugmynd að búa til sánu á bryggjunni á Ísafirði . mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki T vö vestfirsk pör, Elena Dís Víðisdóttir og Gauti Geirsson og Tinna Rún Snorradóttir og Óli Rafn Kristinsson, tóku höndum saman og ætla að opna sánu á Ísafirði á allra næstu dögum sem ber nafnið Bryggjusauna. Þegar blaðamaður átti leið um bæinn í júní var allt á fullu og stutt í að sánubyggingin risi á bryggjunni. Hjónin fengu finnskan arkitekt til að hanna bygginguna en hann hefur áður hannað og rekið sánur í Finnlandi. Nú geta gestir og gangandi notið þess að fara í sánu, með útsýni yfir Ísafjörð og í návígi við hafið. Ef hitinn í sánunni verður fólki ofviða er stutt að fara til að dýfa sér í ískaldan sjó. Hressandi! Skandinavísk stemning „Við erum að opna sánu á gamla olíumúlanum þar sem skip tóku olíu í gamla daga. Staðsetningin er heppileg; nálægt miðbænum og bryggjunni,“ segir Óli Rafn. Sánan á bryggjunni er skemmtileg viðbót við lífið á höfninni. Ljósmynd/Haukur Sigurðsson „Við föngum þessa skandinavísku stemningu en það er oft svo mikið líf á höfnum, til dæmis í Kaupmannahöfn. Þarna erum við miðsvæðis en samt prívat og nálægt skútum og togurum,“ segir Tinna Rún. „Þetta er tólf manna sána og svo búningsklefar og sturtur. Við erum líka með gott útisvæði og það er hægt að fara í sjóinn. Við trúum því að þetta sé kærkomin viðbót við afþreyingar- og upplifunarmöguleikana hér í bænum,“ segir Elena Dís. „Við hugsuðum með okkur að sánan væri okkar leið til að skapa þessa baðstemningu. Þetta gæti hentað bæði bæjarbúum og ferðamönnum en uppspretta hugmyndarinnar er komin til af því að okkur langaði sjálf svo að hafa eitthvað skemmtilegt hérna,“ segir Elena Dís. Finnskur gúru lagði okkur lið Finnskur arkitekt, Tuomas Toivonen, hannaði sánuna en hjónin kynntust honum á tónlistarhátíðinni Við Djúpið en Tuomas er einnig klassískur tónlistarmaður. Hann á og rekur Kulttuurisauna í Helsinki. „Hann er algjör gúrú í þessum efnum og við fengum hann í lið með okkur. Hann hannaði bygginguna og sá til þess að upplifunin yrði alvöru sánaupplifun,“ segir Elena Dís. „Það er mikið líf hér á bryggjunni. Hér er siglingaklúbbur og eins er algengt að krakkar og unglingar hoppi hér í sjóinn. Það er rík hefð hér á Ísafirði fyrir vatnasporti og siglingum auk þess að sánan stendur við skútubryggjuna. Okkur finnst þessi sána passa vel inn í þessa menningu,“ segir Elena Dís. Útsýnið er dásamlegt. „Tuomas kom hingað í fyrra á tónlistarhátíðina í kringum 17. júní og upplifði bæinn og horfði á þetta með augum arkitekts. Hann vildi sækja meiri innblástur í bæinn Ísafjörð og fékk leyfi til að breyta teikningum og byggingarstílnum. Við vorum mjög ánægð með það,“ segir Elena Dís. Ítarlegt viðtal er við fjórmenningana í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Trump tjáir sig um stóru tíðindin Baðstemning á höfninni Valsmenn krækja í lykilmann Njarðvíkur Vill ekki kosningu um sjálfstæði Skota „Það er algjör lykill að klæða sig rétt í veiðinni“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rétt að staldra við áform um sparkvöll Afturkalla breytingar á opnunartíma frístundaheimila Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Ósáttur með byggingu risahótels Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Var á göngu með syni sínum Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Trump tjáir sig um stóru tíðindin Baðstemning á höfninni Valsmenn krækja í lykilmann Njarðvíkur Vill ekki kosningu um sjálfstæði Skota „Það er algjör lykill að klæða sig rétt í veiðinni“ Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Var á göngu með syni sínum Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Ósáttur með byggingu risahótels Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Var á göngu með syni sínum Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita

Share this article