Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

UEFA gagnrýnir FIFA harðlega fyrir að aflétta leikbanni Baloguns

Read Full Article →

Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur fordæmt ákvörðun Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) um að aflétta eins leiks banni bandaríska landsliðsmannsins Folarins Baloguns fyrir 16-liða úrslitaleik Bandaríkjanna gegn Belgíu á mánudag. Í yfirlýsingu UEFA segir að FIFA hafi með ákvörðuninni „farið yfir strikið“ og að hún sé fordæmalaus, óskiljanleg og óafsakanleg. Sambandið bendir á að eins leiks sjálfvirkt bann eftir rautt spjald sé skýr regla sem ekki sé hægt að víkja frá, hvað þá í miðju stórmóti þar sem aðrir leikmenn hafi afplánað sams konar bann. Trúverðugleiki keppninnar veikist „Þegar þeir sem eiga að gæta reglnanna tryggja ekki lengur að þær gildi jafnt fyrir alla er heilindi leiksins í húfi og trúverðugleiki keppninnar veikist,“ segir meðal annars í yfirlýsingu UEFA. Þá varar sambandið við því að ákvörðunin geti skapað fordæmi sem hafi áhrif á sambærileg mál síðar á mótinu. Belgíska knattspyrnusambandið hefur áfrýjað ákvörðuninni og segist undrandi á því að hafa ekki fengið rökstuðning frá FIFA fyrir því að leikbanninu var aflétt. Sambandið hefur einnig lýst því yfir að það skoði möguleika á málshöfðun gegn FIFA vegna málsins. Segja Trump hafa hringt þrisvar Mikil athygli hefur vakið að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafði ítrekað samband við FIFA eftir brottvísun Baloguns og hvatti sambandið til að aflétta leikbanninu. Samkvæmt heimildum Guardian hringdi Trump þrisvar sinnum í forsvarsmenn FIFA áður en ákvörðunin var tekin. Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, fagnaði hins vegar niðurstöðunni og sagði rauða spjaldið sem Balogun fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hafa verið ranglátan dóm. Að hans mati hafi FIFA með ákvörðun sinni leiðrétt mistök. Leikur Bandaríkjanna og Belgíu í 16-liða úrslitum HM hefst á miðnætti og verður sýndur í beinni útsendingu RÚV.

Share this article