Folarin Balogun, stjörnuframherji Bandaríkjanna á HM í fótbolta, þarf ekki að afplána leikbann þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik gegn Bosníu. Balogun getur því leikið gegn Belgíu í 16-liða úrslitum. Hvíta húsið var í beinu sambandi við FIFA vegna málsins. Íþróttafréttamaðurinn Ben Jacobs segist hafa heimildir fyrir því að Hvíta húsið hafi hringt í FIFA til að fá leikbanninu aflétt. Utanríkisráðherrann Marco Rubio beitti sér einnig fyrir því að ákvörðunin yrði endurskoðuð. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkaði FIFA fyrir ákvörðunina á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social. „Takk FIFA fyrir að gera það sem er rétt og að afturkalla mikið óréttlæti. DONALD J. TRUMP forseti.“ Á skilorði Balogun er markahæstur Bandaríkjamanna á mótinu hingað til með þrjú mörk. Hann fékk beint rautt spjald fyrir að traðka aftan á löpp Bosníumannsins Muharemovic í 2-0 sigri Bandaríkjanna. Það var þó óviljaverk og margir töldu dóminn rangan. Þó sá enginn í kortunum að banninu yrði hreinlega aflétt. Þá vakti einnig athygli að FIFA segir að hann sé í raun á skilorði í ár. Semsagt, banninu er aflétt í ár en ef hann fær aftur leikbann fyrir svipað alvarlegt brot fær hann bann fyrir nýja rauða spjaldið og þetta sem hann fékk nú. „Ef Folarin Balogun gerist sekur um annað brot af sambærilegum toga og alvarleika á skilorðstímanum verður frestunin felld úr gildi og leikbannið tekið til framkvæmda, án þess að það hafi áhrif á hugsanleg viðbótarviðurlög vegna hins nýja brots.“