Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FIFA telur Belga ekki málsaðila að sínum eigin leik

Read Full Article →

Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA hefur vísað frá áfrýjunarkröfu Belgíu í máli Folarin Balogun. FIFA telur Belga ekki vera málsaðila og að þeir hafi í raun ekki aðild til að kæra ákvörðunina að aflétta banni Balogun. Stjörnuframherjinn Balogun mun því leika í framlínu Bandaríkjanna gegn Belgíu í 16-liða úrslitum í kvöld. Leikurinn hefst á miðnætti. Bandaríkjamaður leiðir áfrýjunarnefndina Áfrýjunarnefnd FIFA hefur tekið ákvörðun um að áfrýjun belgíska knattspyrnusambandsins verði ekki tekin til greina. Belgar segja að FIFA hafi ekki tilkynnt þeim um neina ákvörðun eða skýringar vegna leikheimildar Balogun. Því hafi þeir ekki átt annan kost en að mótmæla ákvörðuninni. Bandaríkjamaðurinn Neil Eggleston leiðir áfrýjunarnefnd FIFA en FIFA segir að hann hafi ekki komið að ákvörðuninni að vísa frá áfrýjunarkröfu Belga. Balogun fékk upprunalega rautt spjald gegn Bosníu í 32-liða úrslitum HM í fótbolta. Hvíta húsið og Donald Trump Bandaríkjaforseti sjálfur höfðu samband við FIFA til að fá banni hans aflétt. Banninu var aflétt og Balogun fór í skilorð í eitt ár. Belgar hafa einnig tilkynnt bandaríska knattspyrnusambandinu að þeir munu hafa uppi mótbærur ef nafn Balogun verður á leikskýrslu bandaríska liðsins í kvöld.

Share this article