Icelandair og Coca-Cola á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að drykkjarvörumerki Coca-Cola á Íslandi verða aftur fáanleg um borð í vélum flugfélagsins. Frá og með morgundeginum, 4. mars, verða Coca-Cola, Coca-Cola Zero Sugar, Fanta Zero, Sprite Zero og Icelandic Glacial kolsýrt vatn í boði í öllum áætlunarflugum Icelandair. „Um er að ræða tímamótasamstarf en Coca-Cola vörur voru síðast í boði um borð hjá Icelandair árið 2008. Með samningnum snúa vörurnar því aftur um borð eftir 18 ára hlé,“ segir í fréttatilkynningu. Formleg undirritun fór fram í höfuðstöðvum Icelandair þar sem fulltrúar beggja fyrirtækja komu saman til að fagna upphafi samstarfsins. „ Við erum afar stolt af því að hefja þetta samstarf við Icelandair og sjá vörumerki Coca-Cola aftur um borð ,“ segir Anna Regína Björnsdóttir , forstjóri Coca-Cola á Íslandi. „ Icelandair er eitt sterkasta og virtasta vörumerki landsins og það er okkur heiður að fá að vera hluti af þeirri upplifun sem félagið skapar fyrir farþega sína á hverjum degi.“ „ Við hlökkum til samstarfsins við Coca-Cola um gosdrykki um borð í flugvélum okkar ,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „ samstarfið er niðurstaða útboðs og verða gosdrykkir frá Coca-Cola fáanlegir um borð hjá okkur nú strax í byrjun mars.“